ABC barnahjálp International

ABC barnahjálp International var stofnuð þann 1. febrúar 2007. Stofnfundur var haldinn í Síðumúla 29 að viðstöddum Íslendingum og Færeyingum en stofnun ABC barnahjálpar í Færeyjum var fyrsta skrefið sem tekið var til að útvíkka starf ABC barnahjálpar á Vesturlöndum.

Samhliða stofnun ABC barnahjálpar í Færeyjum var tekin sú ákvörðun að stofna ABC International sem regnhlífarsamtök yfir allt starf ABC barnahjálpar.

Smelltu hér til að skoða heimasíðu ABC International

Yfirlit yfir starf ABC barnahjálpar International

Ísland ABC barnahjálp stofnuð í júní 1988
Pakistan ABC barnahjálp stofnuð í ágúst 2005
Kenýa ABC barnahjálp stofnuð í október 2006
Líbería ABC barnahjálp stofnuð í janúar 2007
Færeyjar ABC barnahjálp stofnuð snemma árs 2007
Úganda Starfað frá 1993 - ABC  stofnað haustið 2007
Bandaríkin ABC barnahjálp stofnuð í Flórída haustið 2007
Filippseyjar Starfað frá 1990 - stofnuð haustið 2007
Burkina Faso  ABC barnahjálp stofnuð í  júlí 2008
Senegal ABC barnahjálp stofnuð haustið 2008
Indland Starfað frá 1992 - stofnun ABC á stefnuskrá
Holland ABC barnahjálp stofnuð haustið 2008
Suður-Afríka ABC barnahjálp stofnuð haustið 2008
Bretland Unnið að stofnun ABC árið 2008
Danmörk Unnið að stofnun ABC haustið 2008

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is