1. gr.
Skilgreining og heiti, heimili og varnarþing
ABC barnahjálp International (hér eftir nefnt ABC) er sjálfeignarstofnun með heimili og varnarþing í Reykjavík.
2. gr.
Eðli ABC
ABC er byggð á kristnum gildum með kærleiksboðorðin í huga að okkur beri að elska náungann eins og okkur sjálf og bera hvers annars byrðar þannig að við sýnum í verki að Guð er faðir föðurlausra og hann réttir þeim hjálparhönd sem eru þurfandi og þjáðir.
3. gr.
Tilgangur
Tilgangur ABC er að styðja fólk, einkum börn og unglinga, til sjálfbærni. ABC má láta neyðarhjálp til sín taka, einkum ef það er þáttur í að ná fyrrgreindu markmiði.
4. gr.
Hvernig tilgangi skal náð
Tilgangi sínum hyggst stofnunin ná með því að
a)stofna sjálfseignarstofnanir í hinum ýmsu löndum sem starfa undir regnhlíf ABC,
b)móta stefnu, starfsreglur og siðareglur starfseminnar í heild,
c)finna samstarfsaðila og starfsfólk í hinum ýmsu löndum,
d)skilgreina og meta verkefni og halda lista yfir þau fyrir gjafalöndin til að velja af,
e)fylgjast með starfi ABC í hinum ýmsu löndum og halda utan um það eftir þörfum,
f)tryggja með þessum hætti að sem flestum börnum megi koma til hjálpar, þau fái varanlega hjálp með menntun, fæði, læknishjálp, fatnaði og húsnæði þar sem þess er þörf,
g)koma upp heimilum fyrir heimilislaus börn, heimavistum og skólum, þ.m.t. framhaldsskólum, svo börn geti útskrifast með starfsheiti og/eða prófgráður.
Stjórn ABC skal semja nánari útfærslu á tilgangi félagsins og hvernig honum skuli náð. Skal sú útfærsla tekin til endurskoðunar eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Skal hún send ABC í hinum ýmsu löndum. Útfærsla þessi skal mæla nánar fyrir um framkvæmdina. Fyrstu reglur skulu liggja fyrir samhliða setningu skipulagsskrár þessarar.
5. gr.
Stofnfé og stofnendur
Stofnfé stofnunarinnar er kr. 700.000. Er það lagt til af Vinafélagi ABC barnahjálpar og ABC barnahjálp á Íslandi með framlögum velunnara.
Stofnfé skal ávaxtað á hávaxtareikningi.
Stofnendur stofnunarinnar eru Guðrún Margrét Pálsdóttir og Hannes Lentz.
6. gr.
Tekjur
Tekjur stofnunarinnar eru fyrst og fremst gjafafé og fjáraflanir. Gjafafé frá öllum söfnunarlöndum skal lagt inn á gjaldeyrisreikning ABC. Skal ABC sjá um að senda gjafafé áfram til samstarfsaðila samkvæmt skilgreiningu gjafarans og þörf í viðtöku landi.
7. gr.
Stjórn stofnunarinnar.
Æðsta vald stofnunarinnar er stjórn hennar.
Stjórn stofnunarinnar skal skipuð 12 mönnum og skal hver stjórnarmaður hafa sinn varamann. Kjörtímabil stjórnarmanns og varamanns er hið sama. Láti stjórnarmaður af störfum tekur varamaður hans sæti og stjórnin velur nýjan varamann í hans stað. Er kjörtímabil þeirra hið sama og þess stjórnarmanns sem upphaflega var kjörinn.
Sé stjórnarmaður forfallaður boðar hann sjálfur varamann sinn.
Kjörtímabil stjórnarmanns er þrjú ár
Um leið og einhver lætur af stjórnarstörfum velur meirihluti stjórnar nýjan stjórnarmann í hans stað. Heimilt er að endurkjósa stjórnarmenn eins oft og þurfa þykir.
Frumkvöðlar ABC, Guðrún Margrét Pálsdóttir og Hannes Lentz, skulu gegna stöðu formanns og varaformanns stofnunarinnar. Skulu þau eiga þann rétt ævilangt.
Falli formaður og varamaður hans frá skiptir stjórn með sér verkum.
8. gr.
Boðun stjórnarfunda.
Stjórnarfundi skal boða með þriggja sólarhringa fyrirvara hið skemmsta. Boðuninni skal fylgja dagskrá fundarins. Formaður annast boðun stjórnarfunda en varaformaður í forföllum hans. Það veldur ekki ógildi stjórnarfunda þótt boðað sé til þeirra með skemmri fyrirvara. Jafnframt geta 2/3 fundarmanna samþykkt að taka mál á dagskrá sem ekki voru nefnd í fundarboði. Stjórnarmaður sem ekki var mættur á fund sem boðað var til með of skömmum fyrirvara eða mætti ekki á fund þar sem nýtt mál var tekið á dagskrá sem ekki fylgdi fundarboði, getur krafist þess að boðað verði til nýs fundar með tilkynningu til stofnunarinnar sem send skal innan sólarhrings eftir að hann fær vitneskju um afgreiðslu fundarins. Skal ákvörðun fundarins þá ekki framfylgt fyrr en nýr stjórnarfundur hefur verið haldinn og málsefnið afgreitt að nýju.
Skylt er að boða stjórnarfund ef fjórir stjórnarmenn krefjast þess. Sé ekki boðað til stjórnarfundar innan þriggja sólarhringa frá því að krafa berst þar um geta þeir staðið að boðun fundarins sjálfir.
9. gr.
Stjórnarfundir
Stjórnarfundi má halda með eftirgreindum hætti:
a)Með því að stjórnin komi saman á ákveðnum stað.
b)Með fjarfundarbúnaði.
c)Með hverjum þeim hætti sem menn kjósa svo fremi að umræður geti farið fram milli stjórnarmanna um þau málefni sem rædd eru og allir komið sjónarmiðum sínum að áður en málið er afgreitt.
Afl atkvæða ræður niðurstöðu mála á stjórnarfundi.
10. gr.
Fjármál stofnunarinnar.
Stjórn ABC ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar. Skal hún gæta þess að bókhald sé í lögbundnu horfi í hvívetna, svo og ársreikningar. Ber stjórnin ábyrgð á að hvort tveggja sé í lögmætu horfi.
11. gr.
Endurskoðun.
Ársreikningar ABC skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda sem stjórn ABC velur.
12. gr.
Framkvæmdastjórn.
Stjórn ABC getur kosið framkvæmdastjóra. Einnig er stjórn ABC heimilt að veita prókúruumboð.
13. gr.
Breytingar á skipulagsskrá.
Skipulagsskrá þessari má breyta af 2/3 hluta stjórnarmanna auk atkvæðis stjórnarformanns. Sömuleiðis geta 2/3 hlutar stjórnarmanna auk atkvæðis stjórnarformanns vikið manni úr stjórn og kosið nýjan.
Allar breytingar á skipulagsskrá þessari þarfnast samþykkis Sýslumannsembættisins á Sauðárkróki.
14. gr.
Niðurlagning stofnunarinnar.
Ákveði stjórn að leggja ABC niður skulu eignir renna til ABC barnahjálpar á Íslandi. Til að leggja ABC niður þarf samþykki 2/3 hluta stjórnarmanna ásamt atkvæði stjórnarformanns á tveimur fundum og skulu líða a.m.k. 2 mánuðir á milli funda.
Niðurlagning stofnunarinnar þarfnast samþykkis Sýslumannsembættisins á Sauðárkróki.
15. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þegar fullskipuð stjórn kemur saman í fyrsta sinn eftir setningu stofnskrár þessarar skulu kjörtímabil þriggja stjórnarmanna vera til 1 árs, fjögurra til 2ja ára og fjögurra til 3ja ára. Eftirleiðis verður kjörtímabil nýrra stjórnarmanna 3 ár. Fyrsta stjórn stofnunarinnar er valin af stofnendum og samþykkt á stofnfundi.
16. gr.
Staðfesting skipulagsskrárinnar. Skipulagsskrá þessi tekur gildi við samþykki stofnenda og sýslumannsembættisins á Sauðárkróki.
Reykjavík, 23. apríl 2007
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 19/1988
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki árið 2007
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is