ABC skólinn er nýjung í starfi ABC barnahjálpar og er enn í mótun. Við erum nú að fara yfir síðasta skólaár, meta árangur af skólastarfinu og endurskoða markmið og námskrá skólans. Þónokkrir hafa látið í ljós vilja til taka þátt í næsta skólaári og munum við taka við umsóknum um skólavist um leið og vinnu okkar er lokið. Vinsamlegast hafið biðlund.
Við munum eflaust breyta skólanum eitthvað en vonandi bara til batnaðar.
Eftirfarandi eru upplýsingar sem tengjast síðasta skólaári en við áskiljum okkur rétt til að breyta þeim fyrir næsta skólaár ef við teljum það til bóta fyrir skólann eða starf ABC barnahjálpar í heild:
ABC skólinn er undirbúnings- og þjálfunarskóli ABC barnahjálpar fyrir fólk,
18 ára og eldra sem hefur áhuga á að taka þátt í starfi ABC til hjálpar götubörnum eða hefur áhuga á hjálparstarfi almennt.
Skólinn hófst mánudaginn 9. nóvember 2009.
Kennt er frá kl. 9-13 virka daga frá 9. nóv.-18. des. 2009 og 4. jan.- 5. mars 2010. Farið verður eina helgarferð út úr bænum á námstímanum og 3ja vikna vettvangsferð til Afríkulands í lok skólans. Vettvangsferðin er ekki skylda og kostnaðinn við hana þarf að greiða sérstaklega. Helgarferðin er hins vegar innifalin í staðfestingargjaldi.
Sjá má nánari upplýsingar um skólann í námskrá skólans hér til hliðar.
Skráningu hefur verið lokað en farið verður aftur að taka á móti umsóknum í júní 2010 fyrir haustnám, þ.e. september til desember.
Staðfestingargjald er 20.000 kr. og geta atvinnulausir fengið það endurgreitt að hluta. Skólagjaldið má leggja inn á reikning 344-13-42000, kt. 620207-2170.
Við höfum fengið til liðs við okkur frábæran hóp af fólki sem kennir við skólann s.s. lækna, kennslufræðinga, sálfræðinga, mannfræðinga, þróunarfræðinga, heimspekinga, sérfræðinga í alþjóðasamskiptum, vísindamenn og fólk með mikla þekkingu og reynslu af vettvangi. Allir sem koma að skólanum gefa vinnu sína.
Skólinn er nýjung á Íslandi og hvetjum við fólk til að nýta sér þetta frábæra tækifæri.
Smellið hér til að fara á heimasíðu skólans.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is