Námskrá ABC skólans  

skólaárið 2009 - 2010

 

 

Hugsjón ABC barnahjálpar er að gefa öllum:

§ Götubörnum heimili

§ Fátækum börnum kost á að ganga í skóla

§ Sjúkum börnum aðgang að læknishjálp

§ Vonlitlum börnum von um bjartari framtíð með framhaldsmenntun

§ Þurfandi og þjáðum börnum umönnun og umhyggju

§ Særðum og brotnum börnum kærleika Guðs


Markmið ABC skólans er að:

§ Þjálfa einstaklinga til að ná fram hugsjón ABC barnahjálpar

- Fólk sem getur farið og hlúð að götubörnum um allan heim með því að gefa þeim heimili, menntun, framtíðarvon og kærleika Guðs

§ Undirbúa nemendur til að takast á við krefjandi aðstæður í framandi landi

§ Byggja upp þekkingu þeirra og færni til að starfa fyrir þurfandi börn

§ Hvetja nemendur til að miðla áfram til annarra því sem þeir hafa lært og tileinkað sér, skjólstæðingum ABC í hag

§ Finna mögulega framtíðar hjálparstarfsmenn

- Fólk sem verður fært um að leiða starf ABC úti í heimi og leiðbeina innfæddum við að annast börnin.


 

Námskrá

Starfsáætlun:

Starfstími: Kennt er frá kl. 9 -13 alla virka daga í 15 vikur á Íslandi,

frá 9. nóvember - 18. desember 2009 og 4. janúar - 5. mars 2010.

Farin verður helgarferð út úr bænum á miðjum námstímanum og um mánaðamótin mars/apríl verður farin 3ja vikna vettvangsferð til Kenýa en ekki er skylt að fara í þá ferð.

Kennslustaðir: Kirkjur

Skólagjöld: Nemendur þurfa ekki að greiða eiginleg skólagjöld en borga sjálfir kostnað við námsgögn og bækur svo og vettvangsferð sína, tryggingar og bólusetningar.

Innritun í ABC skólann staðfestist með 20.000 kr. greiðslu sem er vegna kostnaðar við Alfahefti, 10 léttar veitingar á Alfanámskeiði og gistingu í 2 nætur og mat í helgarferð sem farin verður út úr bænum í tengslum við námskeiðið auk pappírskostnaðar.


Starfsfólk:

Skólastjórn: Í skólastjórn sitja 5 einstaklingar. Skólastjórnin starfar undir hugsjón og stefnu ABC barnahjálpar. Hún sér um undirbúning og setningu skólans og tekur ákvörðun um hvernig megi best ná fram markmiðum skólans, s.s. með vali á viðfangsefni og kennurum.

Stjórnin metur árangur af skólastarfinu og ráðfærir sig við ráðgjafa skólans um tillögur til úrbóta og breytinga ef ástæða þykir til.

Henni ber að vera vakandi yfir því að skólinn sé ætíð ABC barnahjálpar til sóma og framdráttar.

Í skólastjórn eru:

Bryndís Rut Stefánsdóttir, kennari og stjórnarmaður ABC International.

Guðjón Ingi Guðmundsson, hefur starfað á vegum friðargæslunnar í Afganistan og á Unicef stöð í Súdan og er í varastjórn ABC.

Guðrún Margrét Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur, stofnandi og formaður ABC barnahjálpar.

Hannes Lentz, tryggingaráðgjafi, stofnandi og stjórnarmaður ABC barnahjálpar.

Helga S. Sigurðardóttir, fjármálastjóri með mastersgráðu í viðskiptafræði og stjórnarmaður ABC barnahjálpar.


Ráðgjafar:
Ráðgjafar eru stjórn skólans innan handar um málefni sem tengjast skólanum, koma með faglega ráðgjöf varðandi námstilhögun, viðfangsefni og ýmislegt er tengist vettfangsferð nemenda. Ráðgjafar styðja við starfsemi skólans í samræmi við hugsjón og markmið ABC barnahjálpar og stuðla þannig að því að gera góðan skóla betri.

Ráðgjafar skólans eru:

Gísli Rafn Ólafsson, ráðgjafi hjá Microsoft á sviði náttúruhamfara og stjórnandi íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar.
Guðfinna S. Bjarnadóttir, doktor í atferlis- og stjórnunarfræðum, fyrrverandi rektor HR og fv. alþingismaður.

Kjartan Jónsson, guðfræðingur og prestur, með mastersgráðu í kristniboðsfræðum og doktorsgráðu í mannfræði. Hann hefur starfað fyrir Kristniboðssambandið í 20 ár, þar af 12 ár í Kenýa og 5 ár fyrir KFUM.

Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, félagsráðgjafi með mastersgráðu í alþjóðlegum friðarfræðum.

Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins og ritstjóri Bjarma. Hann hefur starfað sem kristniboði, kennari, skólaprestur og framkvæmdastjóri KFUM og KFUK í Reykjavík. Hann hefur lokið prófi í guðfræði, sagnfræði, norsku og uppeldis- og kennslufræði.

Soffía Sigurgeirsdóttir, með BA í sálarfræði og MSc í alþjóðasamskiptum.

Valgerður Sverrisdóttir, fv. Alþingismaður og fv. utanríkisráðherra Íslands.


Kennarar og fyrirlesarar: Kennarar, fyrirlesarar og leiðbeinendur eru hópur fólks sem getur samsinnt sig hugsjón ABC barnahjálpar um að veita götubörnum þriðja heimsins von um bjartari framtíð með alhliða hjálp. Þeir búa yfir þekkingu og reynslu, hver á sínu sviði, sem gagnast nemendum skólans til undirbúnings fyrir hjálparstörf á vettvangi.

Umsjónarmenn: Umsjónarmenn ABC skólans er fólk sem er í gestgjafahlutverki, tekur á móti nemendum og kennurum og er þeim innan handar á skólatíma. Það aðstoðar við ýmislegt sem tengist skólastarfinu s.s að halda utan um mætingalista, undirbúa kennslugögn (s.s. töflu, skjávarpa, ljósrit ef þarf og bækur) og hellir upp á kaffi/te.


Kennslutilhögun:

Um er að ræða fullorðinsfræðslu fyrir fólk 18 ára og eldra.

Fyrirlestrar, umræður, hópvinna, þjónusta, jafningjafræðsla og vettvangsferð.

Reikna má með einstaklings- eða hópvinnu utan stundaskrár. Farin verður helgarferð í tengslum við Alfa námskeiðið. Rík áhersla er lögð á að nemendur sýni þjónustulund og þjóni hver öðrum t.d. með því að sjá um sameiginlegan hádegisverð og frágang/þrif og kynnist þannig þeim anda sem ríkir í starfinu. Nemendur sem ekki fara í vettvangsferðina vinna saman að fjáröflun til þeirra verkefna sem sinnt er í vettvangsferðinni á meðan hún stendur.

Ástundun:

Áhersla er lögð á ástundun og skólasókn.

Nemendur skulu leitast við að sækja alla tíma samkvæmt stundaskrá. Ákjósanlegt er að nemendur mæti fyrir settan tíma til að valda sem minnstri truflun.

Skólasókn þarf að vera 80% til að nemandi fái viðurkenningu um að hafa lokið námi.


Námsgreinar og viðfangsefni:

Þróunarhjálp - 60 tímar

Markmið:

Að upplýsa nemendur um:

§ fátækt og önnur vandamál sem þróunarlönd standa frammi fyrir

§ mannréttindi og markmið Sameinuðu þjóðanna til bæta hag bágstaddra barna

§ þróunarhjálp Íslendinga (ÞSSÍ)

§ hjálparsamtök á Íslandi sem taka þátt í þróunarhjálp

§ þætti sem hafa ber í huga þegar hjálp er veitt

Viðfangsefni:

Fátækt - orsakir, afleiðingar og úrræði

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna

Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna

Verkefni og þróunarhjálp Sameinuðu þjóðanna og hjálparstofnana á Íslandi

Gagn og ógagn af þróunarhjálp

Ýmsar hliðar þróunarhjálpar


Framandi lönd og menning
 - 42 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ fræðist um sögu, trúarbrögð og menningu valinna svæða og landa þriðja heimsins

§ skyggnist inn í það framandi mannlíf og verkefni sem blasir við hjálparstarfsfólki á vettvangi

§ geri sér grein fyrir helstu vandamálum sem þessar þjóðir eiga við að glíma og hvaða úrræði eru til staðar

§ fái innsýn í stjórnmál til að öðlast skilning á stöðu þeirra

§ afli sér meiri vitneskju um ástand þess lands sem áætlað er að þeir starfi í vettvangsferð

§ geri sér grein fyrir hugsunarhætti, siðum og normum svo nemendur brjóti ekki viðteknar venjur, særi eða móðgi innfædda þegar á vettvang er komið

§ verði betur undir það búnir að kynnast og eiga samskipti við innfædda er út er komið

Viðfangsefni:

Lönd í Afríku og Asíu sem ABC starfar í

Þjóðflokkar, saga, siðir, trúarbrögð, tungumál, stjórnskipan, efnahagur, læsi, fólksfjöldi, fjöldi fæddra barna á hverja konu, lífslíkur, helstu sjúkdómar, menntun, lífskjör, heilbrigðis- og velferðarkerfi, þjóðfélagsvandi og ástand í fátæktarhverfum

Úrræði og hagnýt hjálp

Frásagnir fólks er kemur í heimsókn sem hefur búið og unnið við hjálparstörf erlendis


Tungumál/ swahili
 - 15 tímar

Markmið:

Að nemendur læri orð og hugtök sem notuð eru í daglegu tali og geti þar af leiðandi betur:

§ bjargað sér á vettvangi

§ tjáð sig við samstarfsfólk og skjólstæðinga

§ orðið að gagni í mismunandi kringumstæðum

Viðfangsefni:

Swahili


Uppeldis- og kennslufræði
 - 20 tímar

Markmið:

Að nemendur fái innsýn í uppeldis- og kennslufræði til að geta:

§ leiðbeint starfsmönnum og kennurum grunnskóla ABC á jákvæðan og

gagnlegan hátt við mótun og rekstur skólanna

§ miðlað nýjum hugmyndum við kennsluaðferðir

§ stuðlað að hugarfarsbreytingu varðandi uppeldisaðferðir og aga barna

Viðfangsefni:

Grunnur í uppeldis- og kennslufræði


Þar sem er enginn læknir
 - 26 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ Kunni skil á helstu þáttum til varðveislu heilsu og lífs

§ Verði betur undir það búnir að veita hjálp í viðlögum

§ Geti miðlað þekkingu sem stuðlar að bættri heilsu

Viðfangsefni:

Heilbrigðisfræði á einangruðum stöðum þar sem samfélög búa við frumstæðar aðstæður.


Næringar- og sjúkdómafræði
 - 26 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ þekki fæðuhringinn

§ fái grunnþekkingu í næringarfræði og þekki undirstöður hollrar fæðu

§ geti leiðbeint og upplýst skjólstæðinga sína um heilbrigt fæðuval

§ kunni að bregðast við vannæringu barna

§ fræðist um helstu sjúkdóma þriðja heimsins

§ öðlist kunnáttu til að verjast og bregðast við þessum sjúkdómum

§ geti miðlað þekkingu sinni til skjólstæðinga sinna.

Viðfangsefni:

Nauðsynleg næringarefni fyrir heilbrigðan líkama

Helstu fæðutegundir þriðja heimsins

Næringarskortur og afleiðingar hans

Helstu sjúkdómar þriðja heimsins s.s. HIV, taugaveiki, mænusótt, kólera, malaría, niðurgangur, berklar, holdsveiki, hundaæði, sýkingar, heilahimnubólga, rauðir hundar og barnasjúkdómar (mislingar og hettusótt)

Vannæring og iðraormar

Sjúkdómavarnir og önnur ráð


Skyndihjálparnámskeið
 - 12 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ Fái undirstöðu í skyndihjálp

§ Komi sér upp skyndihjálpartösku og læri að nota það sem í henni er

Viðfangsefni:

Skyndihjálparnámskeið Rauða krossins


Barnasálfræði, umönnun og sálgæsla
 - 44 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ Kunni skil á sálfræði og sjálfsmynd barna

§ Þekki atriði sem skipta máli hvað varðar andlegt og líkamlegt heilbrigði

barna

§ geri sér grein fyrir hugsanlegu sálartjóni sem börn hafa orðið

fyrir, s.s. vegna ofbeldis, vanrækslu og illrar meðferðar

§ átti sig á viðbrögðum barna sem lenda í sársaukafullum aðstæðum og hvernig

þeir geti veitt stuðning og umhyggju

§ Geti leiðbeint við umönnun og uppeldi barna

§ skilji gildi sálræns stuðnings og verði betur í stakk búnir að veita skjólstæðingum ABC alhliða hjálp

§ Geri sér grein fyrir hættu á einelti og misnotkun barna

Viðfangsefni:

Barnasálfræði

Barnasálgæsla

Barnaumönnun

Öryggi barna

Ofbeldi; orsök/afleiðing

Áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn

Sorg og sorgarferli

Áfallahjálp / sálræn skyndihjálp

Fyrirgefning

Sálgæsla til bata


ABC
 - 25 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ kynnist hugsjón og starfi ABC

§ fái innsýn í starf ABC barnahjálpar

§ tileinki sér starfsreglur ABC

§ verði hæfir erindrekar ABC

Viðfangsefni:

Kristið siðgæði

Mannleg samskipti

Verklagsreglur ABC

Hugsjón, saga og verkefni ABC barnahjálpar


Alfa námskeið:
- 21 tími + helgi út úr bænum

Markmið:

Að nemendur:

§ fræðist um grunnatriði kristinnar trúar

Viðfangsefni:

Mikilvægustu spurningar kristinnar trúar


Faðir hinna föðurlausu
 - 15 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ fái innsýn í grunn ABC - þ.e. ást Guðs til barna

§ fái aukinn skilning á þeim gildum sem drífur hugsjón og starf ABC barnahjálpar

§ kynnist boðskap Jesú Krists er snýr að umhyggju og gæsku til náungans

§ læri að þekkja ritningarvers sem ABC barnahjálp byggir á

§ geri sér grein fyrir hvernig brotin föðurímynd hefur áhrif á velferð barna og

hvernig Guð getur verið hinn fullkomni faðir fyrir þau

Viðfangsefni:

Föðurhjarta Guðs

Biblíulestrar um líf, starf og boðskap Jesú Krists

Perlur Biblíunnar sem eru mikilvægar fyrir starf ABC

Mismunandi föðurímyndir


Kristilegur kærleikur í verki
 - 15 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ kynnist einstaklingum sem hafa markað spor í hjálparstarfi fyrr og síðar

§ skoði hvers konar fólk þetta er/var og hvað varð til þess að það náði slíkum árangri

§ greini æskilega karakterþætti og umhyggju fyrir öðrum sem þarf að vera til staðar í hjálparstarfi til að það verði árangursríkt

Viðfangsefni:

Nokkrar heimsþekktar persónur sem hafa skarað fram úr í hjálparstarfi

Kærleikurinn og hvernig hann mótar karakter fólks


Persónulegur undirbúningur fyrir vettvangsferð
 - 15 tímar

Markmið:

Að nemendur:

§ fái þekkingu á nauðsynlegum undirbúningi fyrir vettvangsferð

§ verði meðvitaðir um mikilvæg öryggisatriði til að forðast háska á vettvangi

Viðfangsefni:

Ferðaáætlun

Kostnaður sem gera má ráð fyrir - safni mögulega fyrir vettvangsferð sinni með eigin fjáröflun

Bólusetningar og tryggingar

Eigin lyfjataska

Vegabréfsáritanir

Farseðlar og gjaldeyrir

Grunnreglur hvernig má varast sjúkdóma og sýkingar s.s. mataræði, hreinlæti, skordýravarnir o.s.frv.

Varnir gegn ofþornun, sólbruna, sólsting, iðrarormum o.s.frv.

Rétt hugarfar og viðhorf, tillit til annarra, vilji til að þjóna á staðnum og þola slæman aðbúnað.

Öryggismál - það sem þarf að varast, spilling, glæpir o.s.frv.

Samskipti við útlönd (við aðstandendur skóla og heimila)


Rekstur heimilis, skóla og/eða skrifstofu
 - 24 tímar

Markmið:

Að nemendur fái innsýn í þætti sem nauðsynlegt er að hafa í lagi þegar reka þarf heimili, skóla eða skrifstofu s.s.:
Kostnaðar- og rekstraráætlanir, bókhald, starfsmannahald, húsnæðismál og öryggismál

Að nemendur geti miðlað því sem gerist í starfinu til þeirra sem heima eru s.s. með skýrslugerð, fréttamiðlun og ljósmyndum

Viðfangsefni:

Rekstur

Bókhald

Skýrslugerð

Fréttamiðlun

Ljósmyndun


Verkmennt og hagnýt hjálp
- 15 tímar

Markmið:

Að nemendur fái

§ innsýn í verklega þætti sem geta komið að gagni við uppbyggingu og rekstur

hjálparstarfs

§ hugmyndir og þekkingu sem hægt er að miðla á vettvangi til að bæta lífskjör

Viðfangsefni:

Grunnþekking /innsýn í nokkur hagnýt mál s.s:

Brunnagerð

Vatnsmál

Ræktun matjurta og húsdýra til manneldis

Klósett- og rotþróagerð

Múrsteinshleðslu

Fatasaum

Hluti sem hægt er að framleiða og selja til tekjusköpunar

Orkuframleiðslu


Vettvangsferð - 3 vikur

Markmið:

Að nemendur kynnist af eigin raun

§ kjörum fátækra í þriðja heims ríki

§ starfi ABC í þágu bágstaddra barna

Að þeir fái að taka þátt í hjálparstarfi og geti miðlað því sem þeir hafa lært

Verkefni:

Þriggja vikna vettvangsferð til Kenýa:

- Ferðir í fátækrahverfi Nairóbí til kynnast kjörum fátækra og að heimsækja styrktarbörn og fjölskyldur þeirra

- Þátttaka í starfi ABC í Kenýa


Námsmat:

Í námsferlinu öllu er lögð rík áhersla á fullnægjandi skólasókn, að nemendur taki virkan þátt í náminu og leitist við að tileinka sér námsefnið eftir föngum.

Ætlast er til að þeir sýni fúsleika og góða þjónustulund í samstarfi, komi fram af heiðarleika og trúmennsku og láti vel að stjórn þess sem fer fyrir í hverju verki.


Skólalok:

Eftir vettvangsferðina munu nemendur:

- skrifa greinargerð með myndum/fréttapistil um ferð sína

- standa sameiginlega að eins til tveggja daga ráðstefnu þar sem þeir greina frá vettvangsferðinni (eða fjáröflunarverkefni) og reynslu sinni í máli og myndum

Skólastarfinu lýkur með formlegum skólaslitum. Fá þá nemendur sem hafa lokið náminu með fullnægjandi hætti viðurkenningarskjal um að hafa lokið námi í ABC skólanum.


Ávinningur fyrir nemendur:

Þótt nemandi hafi lokið námi í ABC skólanum er það ekki ávísun á starf hjá ABC barnahjálp, en ABC barnahjálp mun vissulega líta til þess hóps sem hefur farið í gegnum ABC skólann þegar nýr starfsmaður er valinn, sérstaklega hvað varðar starfsmenn og sjálfboðaliða á erlendri grund og getur þá þátttaka og árangur úr skólanum verið leiðbeinandi um val á fólki til að fara erlendis á vegum ABC.

Einnig má ætla að nám skólans geti greitt götuna fyrir nemendur á öðrum vettvangi.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is