Út er komin matreiðslubókin "Allir geta eldað" eftir Aðalbjörgu Reynisdóttur.
Í bókinni má sjá hvernig málunum er bjargað þegar lítið er til. Hvernig úbúa má veislu án mikillar fyrirhafnar og gefin heilræði sem létta lífið.
Allt andvirði bókarinnar rennur til ABC barnahjálpar. Bókin kostar 1.980 kr. og fæst á skrifstofu ABC í Síðumúla 29 og í flestum ritfanga og stórverslunum. Andvirði bókarinnar rennur í sjóð til að koma af stað sjálfbærri ræktun til að létta undir við framfærslu barnanna okkar í hinum ýmsu löndum.
Við þökkum Aðalbjörgu innilega fyrir frábært framtak og verslununum sem hafa hana til sölu og hvetjum alla til að eignast þessa skemmtilegu bók. 
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is