Bílanytjamarkaður til styrktar ABC



Velunnarar ABC geta nú styrkt starfið með óvenjulegum hætti. Þeir sem þurfa að losa sig við gamla bíla  geta nú komið með þá á Bílasölu Guðfinns og gefið þá til ABC barnahjálpar eða fengið 15.000 kr. skilagjald fyrir bílinn.
Bílasala Guðfinns sinnir þessari sölu fyrir ABC án endurgjalds og af miklum vináttuhug og Sjóvá leggur þessu máli einnig lið með því að greiða eigendaskiptagjöldin og tryggingar af þeim bílum sem er afsalað til ABC á meðan þeir standa á sölunni.

ATH. Bílarnir sem gefnir eru þurfa hvorki að vera skoðaðir né í 100% lagi.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is