Atorka Group og ABC barnahjálp hafa undirritað styrktarsamning um byggingu skóla í Burkina Faso. Styrkurinn er 15 milljónir króna á árunum 2007-2009 og er ráðgert að geta byggt skóla fyrir um 1500 börn. Er þetta næst stærsti styrktarsamningur sem gerður hefur verið við ABC barnahjálp og gerist Atorka Group með honum brautryðjandi starfsins í Burkina Faso. Vegna fjármálaerfiðleika á Íslandi voru þó aðeins greiddar 10 milljónir til verkefnisins.