Nytjamarkaður til styrktar ABC barnahjálp


Opnaður hefur verið nytjamarkaður til styrktar ABC barnahjálp og líknarfélagi Kærleikans. Markaðurinn hefur fengið nafnið Nytjamarkaðurinn og er til húsa að Skútuvogi 11.  Á Nytjamarkaðnum eru til sölu bæði nýjar og notaðar vörur svo sem föt, heimilistæki, húsgögn og í raun allt milli himins og jarðar. Opnunartími Nytjamarkaðarins er milli 12:00 og 18:00 alla virka daga og milli 12:00 og 16:00 á laugardögum.

Nú er  tilvalið tækifæri að fara í gegnum geymsluna, bílskúrinn eða fataskápinn og athuga hvort að þar leynist ekki eitthvað sem tilvalið væri að gefa framhaldslíf á Nytjamarkaðnum. Tekið er við hlutum í Skútuvogi 11 á opnunartíma og einnig er hægt að láta sækja hluti til gefanda sé þess óskað.


Síminn hjá Nytjamarkaðinum er 520-5500.


Við hvetjum alla til þess að leggja leið sína á Nytjamarkaðinn og kanna hvort þar sé eitthvað sem hugur þess girnist og um leið styðja við og styrkja málefnið.



 

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is