Þann 21. nóvember sl. var opnuð sýning í Reykjavík Art Gallerý á Skúlagötu 30 á málverkum Tolla þar sem hann túlkar íslenska náttúru á sinn persónulega hátt. Málverkin hefur hann unnið undanfarin ár bæði hér heima og erlendis og er þetta yfirgripsmesta málverkasýning listamannsins til þessa.
Á sýningunni var efnt til uppboðs á málverki Tolla sem hann gaf til styrktar ABC barnahjálp, en á sýningunni var sérstök kynning á barnahjálp ABC.
Málverkið, Fjall vonarinnar var selt hæstbjóðanda fyrir 450.000 kr.