Ungmennafélag ABC barnahjálpar er nýstofnað félag
fyrir ungt fólk sem vill láta gott af sér leiða með því að styðja við starf ABC barnahjálpar. Allir ungir í anda eru velkomnir að taka þátt í félaginu sem mun vinna að skapandi og skemmtilegum verkefnum til styrktar ABC.
Félagið er skráð á Facebook undir Ungmennafélag ABC og er hægt að gerast meðlimur þar. Einnig er hægt að skrá sig með því að hringja á skrifstofu ABC barnahjálpar, skrá sig á heimasíðu ABC, www.abc.is eða senda tölvupóst á abc@abc.is.
Opinn kynningarfundur verður haldinn þriðjudagskvöldið 21. apríl kl. 20 á skrifstofu ABC barnahjálpar að Síðumúla 29, 2. hæð. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta!
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is