Samþykktir
Vinafélags ABC barnahjálpar
1. gr.
Tilgangur félagsins er að kosta rekstur ABC barnahjálpar þannig að tekjur hennar geti að mestu eða öllu leyti runnið til skjólstæðinga hennar.
2. gr.
Markmiði sínu hyggst félagið ná með félagsgjöldum, styrktaraðilum og hvers konar annarri fjáröflun. Tekjur félagsins skulu renna óskiptar til ABC barnahjálpar.
3. gr.
Meðlimir í félaginu eru þeir sem styrkja félagið í framangreindum tilgangi um að lágmarki 100.000 kr. á ári.
4. gr.
Aðalfundir félagsins skulu haldnir ár hvert samkvæmt ákvörðun stjórnar. Miða skal við að þeir verði haldnir fyrri hluta árs.
5. gr.
Á aðalfundum fara fram venjuleg aðalfundarstörf, s.s.
a) Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
b) Samþykkt ársreikninga.
c) Kjör tveggja endurskoðenda eða eins löggilts endurskoðanda.
d) Kjör stjórnar.
e) Önnur mál.
6. gr.
Afl atkvæða ræður úrslitum á aðalfundi nema ákveðið verði að breyta samþykktum þessum. Til þess þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða á aðalfundi. Aðalfund skal boða með viku fyrirvara. Hann á að boða með einhverjum af eftirgreindum hætti:
a) Með almennu bréfi á heimilisfang það sem félagsmenn hafa tilkynnt félaginu.
b) Með tölvupósti.
c) Með auglýsingu í útprentuðu dagblaði.
d) Með auglýsingu í fréttabréfi ABC barnahjálpar.
7. gr.
Dagskrá aðalfundar skal birt á heimasíðu félagsins eða ABC barnahjálpar. Komi fram tillaga um lagabreytingu sem ekki er getið í fundarboði eða í dagskrá fundarins, skal hún borin upp á aðalfundi en umræðu og afgreiðslu hennar frestað til framhaldsaðalfundar sem boða skal til með sama hætti og segir í 6. gr.
8. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 3-7 mönnum eftir ákvörðun aðalfundar, og a.m.k. 3 til vara. Varamenn skulu kosnir í ákveðinni röð og taka sæti aðalmanna eftir því. Stjórnin er ályktunarbær ef helmingur stjórnarmanna mætir. Stjórnin skiptir með sér verkum. Formaður stjórnar hefur oddaatkvæði.
9. gr.
Stjórn getur kosið framkvæmdastjóra og einnig veitt prókúruumboð.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is