Föstudaginn 10. febrúar hefst hið árlega söfnunarátak ABC Börn hjálpa börnum 2012, í samstarfi við grunnskóla landsins. Söfnunin mun standa yfir til 8. mars. Þessi árlega söfnun grunnskólabarna sem nú er haldin í 14. sinn er mikilvæg fjáröflun fyrir ABC barnahjálp og fyrir afrakstur þessara safnana í gegnum árin hefur ABC byggt fjölmarga skóla og heimili fyrir fátæk börn í þróunarlöndum.
Í fyrra tóku alls 2.696 börn úr 87 skólum þátt og söfnuðust samtals 7.485.844 kr.
Söfnunarfénu var ráðstafað til efirfarandi verkefna.
· Til að ljúka byggingu nýs skóla fyrir El Shaddai heimilið á Indlandi en safnað var fyrir honum árið 2010.
· Til að kaupa skólaborð og bekki fyrir ABC skólana í Pakistan.
· Til að kaupa lóð og hefja framkvæmdir við nýjan heimavistarskóla fyrir ABC starfið í Nairobi.
ABC vill koma á framfæri innilegu þakklæti til barnanna, kennara og skólastjórnenda.
Í ár munum verður söfnunarfénu skipt niður á ABC starfið í Kenya til þess að halda áfram með byggingu nýrrar heimavistar fyrir götubörn í Nairobi. Einnig verður byggður lítill skóla fyrir fátæk Maasai börn. Þessi börn búa í litlum moldarkofum á sléttunni við fjallið Kilimanjaro og þurfa að ganga marga kílómetra til að komast í skóla. Leiðin í skólann er mjög hættuleg sökum villidýra sem búa á sléttunni svo brýnt er að koma upp skólastarfi nær heimilum þeirra. ABC starfið í Pakistan mun einnig fá sinn skerf til að halda áfram með byggingu heimavistarskólans en eins og er búa heimavistarbörnin í bráðabyrgðarhúsnæði sem er bæði þröngt og lélegt.
Hér má sjá kynningu um líf barnanna í Nairobi sem skólabörnin skoða áður en þau fara út með baukana


Myndir frá ferðinni má sjá í myndaalbúmi hér https://www.dropbox.com/gallery/11079247/2/Kenya/ABC%20li%C3%B0ar%20%C3%AD%20Kenya%20vor%202011?h=2a83fa
Skýrsla frá Margréti Þórhallsdóttur um ferðina í pdf.
Við Abc liðar á vorönn 2011 fórum í vettvangsferð til Kenýa þann 29.3.-19.4.2011. Við komum færandi hendi í Abc heimavistina í Kenýa. Héldum bingó hér heima og fengum styrki frá fyrirtækjum. Alls söfnuðum við ca. kr. 700.000.- sem fæst meira fyrir í Kenýa en á Íslandi. Einnig vorum við með mikið af gjöfum m.a. boli frá Borgarleikhúsinu, skólatöskur frá N1 , föt úr Nytjamarkaði Abc, föt frá vinum og vandamönnum ofl. Fyrir peninginn voru m.a. keyptar baunir og maís fyrir næstu 5 mánuðina, vatnstunnur fyrir drykkjarvatn til að hafa á heimavistinni, ca. 80 pör af skóm, 10 börn tekin inn á heimavistina ofl. Þessar gjafir eru meiri lyftistöng fyrir starfið hjá Abc en við gerðum okkur grein fyrir í upphafi.
Í Nariobi unnum við með starfsfólki Abc heimavistarinnar, fórum í fátækrahverfin til að skrá niður upplýsingar hjá fjölskyldum sem hafa ekki efni á að senda börnin sín í skóla. Það var átakanlegt að koma inn á heimilin í fátækrahverfunum. Upplifa vonleysið og eymdina, ekki til peningur fyrir mat né öðrum nauðsynjum. Það er því mikil hjálp fyrir þær fjölskyldur sem fá Abc stuðningsaðila til að koma börnunum sínum í skóla. Stuðningsaðilinn greiðir þá skólagjöld, skólabúning (í Kenýa er skylda að vera í skólabúning), eina máltíð á dag, skólabækur og læknisþjónustu. Við heimsóttum líka börn sem eru í Abc prógramminu og búa hjá sínum nánustu. Það var greinilegur munur á þeim heimilum samanborið við þau heimili þar sem börnin voru ekki í skóla.
Heimavistin sem Abc rekur er ótrúleg, þar búa 160-170 börn og allt gengur smurt fyrir sig. Börnin sem eru á heimavistinni koma úr mjög erfiðum aðstæðum, þau búa við mun betri aðstæður heldur en þau koma úr. Þau hafa öll sér rúm, fá nægan mat, þvo þvottinn sinn sjálf, hjálpa til við þrif ofl. Börnin sofa í kojum og sefur einn starfsmaður inni í hverju herbergi. Fjöldinn í hverju herbergi fer eftir því hve mörgum rúmum er hægt að koma fyrir, t.d. er 31 barn í herbergi yngstu barnanna. Á lóðinni eru tvær byggingar, í annari byggingunni er skóli fyrir yngri börnin í hinni byggingunni er grunnskóli á neðri hæðinni og Abc leigir tvær efri hæðirnar fyrir heimavistina. Abc rekur eingöngu heimavistina en skólinn er einkarekinn og eru 90% barnanna í honum úr Abc prógramminu. Lóðin er afgirt og er öryggisvörður alltaf við hliðið inn á lóðina þar sem heimavistin er til að tryggja öryggi barnanna og starfsfólks. Skólastarfið í Kenýa er þrjár annir, þrír mánuðir í senn og mánaðar frí á milli. Þegar frí er í skólanum er rekið mikið klúbbastarf á heimavistinni s.s. leiklist, söngur, biblíulestur, föndur ofl. fyrir þau börn sem þar búa. Í þessu starfi fengum við að taka þátt sem var mjög skemmtilegt, sjá hve mikla örvun þessi börn fá sem eru búin að ganga í gegnum mikla erfiðleika. Reynt er að fremsta megni að láta börnin halda sambandi við sína nánustu og fara því þau börn sem hafa aðstöðu til í heimsókn til síns heima í mánaðarfríinu.
Þessi ferð okkar er ómetanleg lífsreynsla sem erfitt er að lýsa.
Fyrir hönd Abc liða
Margrét Þórhallsdóttir
Miðvikudaginn 23. mars ætla nemendur ABC skólans að halda bingókvöld og mun ágóðinn fara í að kaupa baunir, maís og aðrar nauðsynjar handa börnunum í Kenýa.
Bingóin verða haldin í Skarfinum, Skarfagarði 8 (beint á móti Viðeyjarferjunnii) fyrst kl. 17-19 og svo kl. 20-22.
Það ættu því allir að finna tíma sem hentar :)
Verðin eru eftirfarandi:
1 bingóspjald 1000 kr.
3 bingóspjöld 2500 kr.
5 bingóspjöld 4000 kr.
Léttar veitingar verða seldar á staðnum og veglegir vinningar í boði.
Gott væri að þeir sem hafa áhuga á að koma og eru á facebook staðfesti það á facebook viðburðinum okkar:
http://www.facebook.com/event.php?eid=174989729215980
og fyrir þá sem ekki eru á facebook er auglýsing og kort í viðhengi.
Ekki missa af þessari frábæru uppákomu þar sem þú getur bæði lagt góðu málefni lið og farið heim með stórglæsilega vinninga!
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Með bestu kveðju, nemendur ABC skólans.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is