Skólarnir í Peshawar, Gujaranwala, Farooqabak, Chak 96 R/B og Jaranwala urðu fyrir skemmdum vegna flóðanna og þurfti að leggja niður kennslu í marga daga meðan verið var að gera við helstu skemmdirnar. Ekki er vitað til þess að fjölskyldur barnanna í ABC skólunum hafi orðið fyrir alvarlegu tjóni í hamförunum þar sem skólarnir standa allir utan mestu flóðasvæðanna.
Mikil þörf er á fjármagni til þess að gera við skólana og vegi sem fóru illa.
Hægt er að taka þátt í söfnuninni með því að leggja inn á söfnunarreikninginn.
|
skólastofurnar í Machike heimavistinni (Farooqabad) |
|
|
ABC barnahjálp stendur enn frammi fyrir ótal brýnum þörfum og er næsta forgangsatriði hjá ABC barnahjálp að safna fyrir nýrri skólabyggingu í Pakistan.
Í Pakistan ganga 3000 börn í 13 ABC skóla sem komið hefur verið á fót fyrir fjármuni frá Íslandi. Nýjasti skólinn er heimavistarskóli. Skólinn okkar fyrir heimavistirnar er rekinn í bráðabirgðahúsnæði sem er lítið meira en tjöld. Fyrsti veturinn reyndist nemendunum erfiður vegna kulda og þurfti að dúða börnin inn í teppi og gefa þeim heitt að drekka til að reyna að halda á þeim hita en hitinn fer stundum niður fyrir 5°C á veturna. Mikil þörf er á að byggja framtíðarskólahúsnæði þarna áður en næsti vetur gengur í garð en 700 börn, sem eiga enga aðra von um að komast í skóla, stunda nám í þessum skóla. Áætlaður byggingarkostnaður er um 12-15 milljónir króna.

Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is
515-14-110 000
kt. 6906881589