Gjafabréf - tækifærisgjafir

Hægt er að styrkja ABC með því að kaupa gjafabréf til að gefa í jóla- eða tækifærisgjafir.

Þú getur gefið stuðning við barn í mánuð eða lengur, sett persónulegan texta og prentað bréfið út heima http://abc.is/ABChjalparstarf/Stydjabarn/ 

Þú getur gefið hænur, geitur eða skólaborð fyrir ABC starfið með því að senda póst á abc@abc.is með textanum sem þú vilt að fram komi á bréfinu ásamt undirskrift.  Hægt er að fá bréfið sent í tölvupósti eða sækja það til ABC.
 
Hvað er hægt að gera fyrir gjöfina?

- Stuðningur við eitt barn í dagskóla í einn mánuð:  3.000 kr. Sjá Jólabörn ABC
- Ein geit fyrir ABC skóla í Burkina Faso eða á Indlandi: 6.500 kr
- Ein hæna fyrir ABC skóla í Burkina Faso eða í Pakistan: 1.000 kr
- Skólaborð og bekkur fyrir 3 börn í Pakistan: 3500 kr


 

 



Gjafakort

Kortin eru teiknuð af börnum á Heimili litlu ljósanna og renna gjafirnar til uppbyggingar þess heimilis, en þar búa um nú 2000 börn.
Einnig er hægt að fá slík gjafakort með sérprentuðum texta og einnig velja þá hvert af verkefnum ABC er styrkt með gjöfinni.


ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is