Aldrei verið elskuð svona heitt

Þóra Gísla hefur gefið ABC barnahjálp 500 eintök af geilsadisknum sínum "Aldrei verið elskuð svona heitt". Þetta er frábær diskur með lögum og textum eftir Þóru. Diskurinn kostar 2.200 kr og er til sölu á skrifstofu ABC.  Ágóði .sölunnar rennur allur til ABC



Tónlist til styrktar ABC á Tónsprotanum

Tónsprotinn, er ný vefverslun sem sett hefur verið á laggirnar. Sérkenni hennar er að af andvirði hvers disks sem seldur er renna 500 kr. til góðs málefnis. Tónlistarmennirnir sem gefa út diskana velja sjálfir málefnin sem styrkt eru með útgáfunni. Tveir diskar eru nú til styrktar ABC barnahjálp á Tónsprotanum, frá gítardúettnum Duo Nor og Gunnari Þórðarsyni.

 Duo Nor - Vandaður og vel leikinn gítarsamleikur þeirra Ómars Einarssonar og Jakobs Hagedorn-Olsen. 

 Gunnar Þórðarson - Brynjólfsmessa. Einsöngvarar eru Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór.

Pöntun er á slóðinni www.tonsprotinn.is.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is