Hraðlestrarskólinn hefur gefið ABC barnahjálp gjafabréf. Gjafabréfin kosta 34.500 kr og gilda á hvaða námskeið sem er.
Allur ágóði rennur til uppbbyggingar heimavistar í Rackoko í Uganda. Hafið samband við skrifstofu ABC til að nálgast bréfin.
http://h.is/

Handgerð kort frá Filippseyjum
Við höfum fengið sendingu af mjög fallegum handgerðum gjafakortum frá Filippseyjum. Kortin eru búin til af fátækum mæðrum og sem fá lán fyrir hráefninu og búa þau til heima hjá sér. Þær borga lánin með hagnaði af sölu kortanna. Hvert kort er einstakt og á sér sína sögu. Með sölu þeirra hefur lífsgæði kvennanna batnað til muna. Kortin eru seld í stykkjatali á kr 300 stk eða fimm saman í pakka á kr 1500 kr. 
Indian Mango er frábært indverskt veitingahús, staðsett á horni Frakkastígs og Grettisgötu. Þau hafa gefið ABC barnahjálp gjafakort til að selja stuðningsaðilum. Ef ykkur langar út að borða eða gefa góða gjöf er tilvalið að kaupa kort og styðja ABC barnahjálp. Upphæð kortsins er að eigin vali og rennur hún óskert til ABC. http://indianmango.is/

ABC barnahjálp hefur tekið að sér sölu á hálsmeninu Kærleikur.
· Hálsmenið er hannað af Sólborgu S. Sigurðardóttur og Svövu Björk Jónsdóttur hjá Gulli og Silfri efh. en fyrir gripinn hlutu þær fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni sem Félag íslenskra gullsmiða og Samtök iðnaðarins efndu til meðal gullsmiða og gullsmíðanema um hönnum og smíði skírnargjafar/og eða gjafar í tilefni nafngiftar.
· Hluti af söluandvirðinu mun renna til ABC barnahjálpar og verður notað í verkefni í flóttamannabúðum í Rackoko í Norður?Úganda þar sem hafin er bygging heimilis fyrir unglingsstúlkur sem hafa orðið barnshafandi og vöggustofu fyrir börnin þeirra svo þær geti haldið áfram að mennta sig. Þörfin fyrir þetta heimili er gríðarlega mikil því þessar stúlkur flosna yfirleitt frá námi og eiga átakanlega framtíð fyrir sér sem einstæðar mæður.
Verð fyrir kærleik í gulli er kr. 10.250,- og í silfri kr 7.450,-
ABC selur menið einnig til verslana. Vinsamlega sendið pantanir á abc@abc.is
Gjöf tileinkuð börnum
Verðlaunahálsmenið Kærleikur er athyglisverður gripur sem á tvímælalaust erindi á markað. Hugmynd hönnuða að útliti og nafngift gripsins er grípandi og hittir óneitanlega beint í hjartastað.
Kærleiks-hálsmenið er tilvalin til skírnargjafar. Þó ber að hafa í huga þann möguleika að gripurinn gæti einnig (og ekki síst) orðið einskonar boðberi kærleiks, sem gjöf til t.d. foreldra, systkina og/eða annarra sem gefanda þykir vænt um.
Lýsing hönnuða:
Ekkert í heiminum er stórkostlegra en fæðing nýs barns inn í þennan heim. Frá fæðingu barns er það hlutverk aðstandenda að vaka yfir því og vernda, fræða og fylgja því út í heiminn. Óháð uppruna okkar og trú fáum við öll okkar eigið nafn að gjöf sem fylgir okkur inn í lífið.
Menið Kærleikur er hannað með þann kærleik, ást og væntumþykju sem umlykur barnið á þessum tímamótum í huga. Það samanstendur af litlu barni og annarri mannveru (foreldri, systkini, ömmu, afa o.s.frv.) sem vakir yfir því og heitir því aðstyðja það og styrkja á leið þess í gegnum lífið. Armar þeirra mætast og mynda hjarta, táknið fyrir kærleik og ást.En menið má einnig túlka á fleiri en einn hátt. Skírnin er heilögathöfn í kristinni trú þar sem barnið og Guð mætast og því mætti eins túlka menið sem Guð að bjóða barnið velkomið í kristið samfélag.
Við hönnun mensins var haft til hliðsjónar að auðvelt væri að fjöldaframleiða það og þyngd þess kallaði á að það væri á því verðbili sem flestir miða við, við kaup á skírnar-/nafngiftargjöfum. Þá er auðvelt að þróa menið áfram, útbúa það í mismunandi stærðum þannig að bæði barnið sem og foreldri eða systkini þess gætu borið menið. Einnig er auðvelt að grópa steina, eins og td. fæðingarstein barnsins, í það.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is