Markmið okkar er að veita yfirgefnum og umkomulausum börnum varanlega hjálp í formi menntunar og heimila þar sem þess er þörf.
Tíu meginregur ABC barnahjálpar
1. ABC barnahjálp byggir starf sitt á kristnum gildum og leitast við að framfylgja boðorðinu um að elska náungann eins og sjálfan sig og bera hvers annars byrðar. Ávallt skal virða trúarskoðanir skjólstæðinga og taka tillit til þeirra.
2. ABC barnahjálp leitast við að veita hverju þurfandi barni hjálp eftir því sem unnt er án tillits til kyns, kynþáttar, trúar, litarháttar, fötlunar eða öðru því sem mismunun gæti valdið.
3. ABC barnahjálp tekur ekki afstöðu til mismunandi stjórnmálaskoðana eða -flokka og skiptir sér ekki af stjórnmálum.
4. Meginhlutverk ABC barnahjálpar er að:
· Gefa umkomulausum götubörnum heimili
· Veita fátækum börnum aðgang að góðri menntun með því að koma á fót leik-, grunn- og framhaldsskólum þar sem þörf er á og styrkja börn til náms
· Sinna heilbrigðismálum barnanna
· Bjóða upp á fullorðinsfræðslu s.s. lestrarkennslu
· Stuðla að bættri afkomu fátækra fjölskyldna með örlánum og öðrum úrræðum
· Sinna neyðarhjálp ef aðstæður skapast
5. ABC barnahjálp leitast við að hjálpa eins mörgum þurfandi börnum og unnt er. Þó skal þess gætt að fjöldi barnanna komi ekki niður á gæðum þeirrar hjálpar sem veitt er.
6. Þegar börn eru valin inn í prógram ABC barnahjálpar skulu þau börn ávallt hafa forgang sem eru í mestri þörf og hafa ekki von um aðra hjálp.
7. Börn undir verndarvæng ABC barnahjálpar skulu njóta ástar, umhyggju og verndar. Þau skulu fá nauðsynlegt atlæti til að þroskast og dafna eðlilega.
8. Leitast skal við að veita skjólstæðingum ABC barnahjálpar varanlega og heildstæða hjálp.
9. Ávallt skal leitast við að sýna skjólstæðingum ABC barnahjálpar virðingu og stuðla að sjálfstæði þeirra og sjálfbærni.
10. Allt starf ABC barnahjálpar skal einkennast af kærleika, heiðarleika og góðri ráðsmennsku.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is