Söfnuninni: Börn hjálpa börnum 2006, árlegu söfnunarátaki ABC barnahjálpar í samstarfi við grunnskóla landsins, er nú lokið.

 

Í ár var safnað fyrir uppbyggingu skólastarfs í Pakistan. ABC barnahjálp hóf starf meðal fátækra barna í Pakistan í ágúst á síðasta ári. Þórunn Helgadóttir stjórnarmaður í ABC barnahjálp var í Pakistan sumarið 2005 og tók mikið myndefni sem var notað sem uppistaða myndbands sem sent var þeim skólum sem tóku þátt í ár. Niðurstaða ferðar Þórunnar var sú að ABC barnahjálp yrði að hefjast handa þar strax. Hún kynnti sér sérstaklega kjör fátækra minnihlutahópa, s.s. kristinna og hindúa og komst að því að aðeins um 10% þeirra barna höfðu tök á að ganga í skóla og mörg þeirra höfðu ekki aðgang að læknisþjónustu sökum fátæktar. ABC barnahjálp brást skjótt við og nú (í júní 2006) eru 659 börn á framfæri ABC í Pakistan.

 

ABC barnahjálp hefur keypt þrjá landskika í Pakistan og standa yfir byggingarframkvæmdir við þrjá skóla á þeim. Þegar hafa 659 börn hafið nám við þessa skóla og er börnunum kennt í bráðabirgðahúsnæði á meðan byggingu skólanna stendur. Fleiri skólar eru í deiglunni þegar fjármagn leyfir auk aðstöðu til framhaldsnáms. Kostnaður við hvern skóla fyrir 100-300 börn með kaupum á landskika og byggingu skólahúss er ca. á bilinu 2-4 milljónir króna. Um 8000 skólar í Pakistan hrundu eða skemmdust í jarðskálftunum í haust sem hefur orsakað enn meiri þörf á uppbyggingu skólastarfs. Allt fé sem safnast, sem nú er komið yfir 13 milljónir, rennur óskipt til uppbyggingar skólastarfsins í Pakistan.

 

Hverjir hafa stutt við söfnunina

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson; fyrrverandi forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir; menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir; leiðtogar stjórnmálaflokkanna, skólastjórar, kennarar, börn úr grunnskólum og tónlistarskólum, fyrirtæki, foreldrar, fréttamenn o.fl.

 

Þátttökutilkynning

Hér á heimasíðunni er hægt að fylla út þátttökutilkynningu í söfnuninni Börn hjálpa börnum 2007.

Hér með tilkynnist þátttaka neðangreinds skóla:
Nafn skóla:
Tengiliður:
Sími:
Netfang:
Staða tengiliðs innan skóla::
Bekkir sem taka þátt::
Fjöldi barna sem tekur þátt::

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is

 

 



Söfnunarreikningurinn

fyrir söfnunina

Börn hjálpa börnum

er í Netbankanum nb.is 

nr. 1155-15-41414