Söfnunin Börn hjálpa börnum 2005 var formlega sett af stað þann 15. apríl kl. 9 með því að 70 nemendur úr 6. bekk Melaskóla heimsóttu Frú Vigdísi Finnbogadóttur í anddyri Háskóla Íslands þar sem haldin var ráðstefna í tengslum við 75 ára afmæli hennar. Vigdís gaf fyrsta framlagið í söfnunarbauk, kr. 5000. Um hádegisbilið sama dag bauð forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, 50 nemendum úr 5. bekk Álftanesskóla í heimsókn á Bessastaði þar sem hann gaf 1000 kr. seðil í 15 bauka sem börnin höfðu meðferðis. ABC barnahjálp vill þakka þeim báðum innilega fyrir að leggja söfnuninni lið með því að hefja hana á þennan hátt svo og fjölmiðlum fyrir góða umfjöllun. Allt þetta hefur hjálpað börnunum okkar þegar þau gengu í hús og söfnuðu framlögum í baukana.
Alls voru um 3400 börn skráð í söfnunina víðs vegar um landið. Viljum við þakka börnunum, kennurum þeirra og skólastjórum fyrir að leggja söfnuninni lið. Einnig starfsfólki Íslandsbanka fyrir að taka að sér að opna og telja úr baukunum á höfuðborgarsvæðinu svo og starfsfólki annarra banka og sparisjóða sem taldi úr baukum víða um land. Þórunn Helgadóttir útbjó myndband frá Heimili litlu ljósanna, en hún var þar tæpar tvær vikur um síðustu áramót. Hún sýndi myndbandið í grunnskólunum á höfuðborgarsvæðinu, en skólarnir á landsbyggðinni fengu myndbandið sent í pósti. Við þökkum Þórunni fyrir mikið og óeigingjarnt starf sem blés lífi í söfnunina.
Nemendur í 10. bekk Áslandsskóla stóðu fyrir kaffihúsi og söfnuðu 60.700 kr. fyrir ABC barnahjálp. Söfnunin Börn hjálpa börnum var ekki hafin þegar þetta var en þetta framlag þeirra bættist við söfnunina þar sem það átti einnig að renna til Heimilis litlu ljósanna. Frábært framtak hjá krökkunum!
Safnað var að þessu sinni fyrir byggingu átta svefnskála á Heimili litlu ljósanna þar sem verður svefnaðstaða fyrir samtals 800 drengi. Þessir 800 drengir bjuggu í opnum húsum með þaki úr leirflísum. Húsin voru orðin mjög hrörleg og hafði forstöðumaður heimilisins áhyggjur af drengjunum þegar hvirfilbylgir geysuðu, en vindhraðinn í þeim fer upp í 150 km/klst. Á regntímanum láku þökin og í sumarhitanum sem fer í 47 gráður á Celcius hitnuðu húsin mikið. Það var því brýn þörf á að byggja trausta og góða svefnskála til að drengirnir fái að blómstra eins og stúlkurnar, sem fengu nýtt hús ári áður.

Stefnt var að því að safna tíu milljónum króna. Fermetraverðið er um 5.000 kr. og kostnaðurinn fyrir hvert barn sem fær þar inni um 12.000 kr.
Alls söfnuðust 10.068.913 kr. að meðtöldu því fé sem kom í bauka sem stóðu í verslunum og fyrirtækjum yfir söfnunartímann. Byggðir voru svefnskálar fyrir 800 drengi á Heimili litlu ljósanna á Indlandi fyrir afrakstur söfnunarinnar.
Hjartans þakkir fyrir þátttökuna!
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is