Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, bauð fjörugum hópi barna úr Álftanesskóla til sín á Bessastaði og var mjög gaman. Forsetinn gaf samtals í fimmtán söfnunarbauka og þótti börnunum mikið til koma.
Frú. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, tók innilega á móti börnum úr 6. bekk Melaskóla á 75 ára afmælisdegi sínum. Börnin sungu fyrir hana afmælissöng og hún gaf fyrsta framlagið í söfnunina 2005.

Þessar duglegu stúlkur úr 6.-J í Öldutúnsskóla söfnuðu 52.350 kr. Þær heita (frá vinstri) Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Hildigunnur Ólafsdóttir og Linda Magnúsdóttir.
Börn úr 4. bekk Rimaskóla stóðu sig mjög vel í söfnuninni og voru prúð og kurteis. Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóli hefur verið einkar áhugasamur um söfnunina og hvatt börnin til dáða. Hann sendi okkur þessar skemmtilegu myndir af börnunum.
Börn úr Melaskóla fá þær fréttir við skólaslit að þau hafi safnað mestu á landinu eða samtals kr. 473.547. Alls voru 8 bekkir 10 og 11 ára barna sem tóku þátt í í söfnuninni í Melaskóla.
Svefnskálar byggðir á Heimili litlu ljósanna fyrir söfnunarféð 2005.


Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is