Skrifstofa ABC barnahjálpar er staðsett í Síðumúla 29, 2. hæð í Reykjavík.
Skrifstofan var lengst af rekin eingöngu í sjálfboðavinnu, en þar sem mikill og stöðugur vöxtur hefur verið í starfinu frá upphafi kom að því að nauðsynlegt reyndist að ráða fasta starfsmenn auk sjálfboðaliðanna. Stofnaður var launasjóður ABC sem nokkur fyrirtæki og einstaklingar lögðu reglulega í fyrir launum starfsmanna. Í febrúar 2007 var Vinafélag ABC barnahjálpar stofnað sem stuðningur við rekstur og útrás ABC og eru nú fjórir launaðir starfsmenn hjá ABC barnahjálp, skrifstofustjóri og þrír starfsmenn sem manna samtals 2,8 stöðugildi.
Margir sjálfboðaliðar styðja við starfsemina á ýmsan hátt með því að sinna margvíslegum störfum endurgjaldslaust.
Aðalkostnaðarliðirnir í rekstri ABC eru auk launa, rekstur og uppbygging tölvukerfis, póstburðargjöld, pappír og prentun og þóknun kortafyrirtækja og banka vegna framlagsgreiðslna.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is