ABC Children's Aid Uganda

 

ABC Children's Aid Uganda hét áður Uganda Australia Foundation og var stofnuð var af hjónunum Trudy og Francis Odida. Trudy er áströlsk en Francis Úgandamaður. Þau hjónin hafa byggt upp viðamikið hjálparstarf sem sinnir þúsundum barna. Meginþátturinn í því starfi þeirra hefur verið að hjálpa fórnarlömbum alnæmis, munaðarlausum og fátækum börnum að komast í skóla. 

 

ABC Children's Aid Uganda hefur verið samstarfsaðili ABC frá árinu 1993. Í dag styrkir ABC barnahjálp um 2300 börn í Úganda með hjálp íslenskra stuðningsaðila. ABC skólinn í Kitetikka hefur verið byggður mestmegnis fyrir íslenskt fé, bæði frá ABC og ÞSSÍ. Hann hefur stöðugt farið stækkandi og er nú starfræktur þar forskóli, barnaskóli og unglingaskóli. Einnig hefur ABC barnahjálp látið að sér kveða á tveimur stöðum í Norður-Úganda þar sem ríkt hefur stríðsástand til fjölda ára.

 

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is