ABC barnahjálp Pakistan var stofnuð í júlí 2005, en forsvarsmaður hennar er kristinn pakistani að nafni Sharif A. Ditta. Sharif hefur unnið að skólastarfi allan sinn starfsferil, en er nú kominn á eftirlaun. Synir Sharifs byggðu hús fyrir föður sinn þar sem þeir ætluðust til að hann ætti áhyggjulaus efri ár, en um leið og húsið var tilbúið flutti hann í herbergi hjá syni sínum og breytti húsinu í skóla. Sharif er úr fátæku þorpi, en fékk stuðningsaðila sem studdi hann til náms og náði hann að ljúka háskólanámi og öll börn hans einnig. Yngri bróðir hans fékk hins vegar ekki tækifæri til að mennta sig og er ólæs. Ekkert af hans börnum hefur gengið í skóla og eru einhver þeirra í skuldaánauð. Sharif skilur því vel mikilvægi menntunar og hefur brennandi hugsjón að hjálpa sem flestum að mennta sig. Draumurinn varð að veruleika með tilkomu Íslendinga í gegnum ABC barnahjálp.