El Shaddai barnaheimilið var stofnað af Evu Alexander frá Indlandi sem var fyrst var með starf til hjálpar vændiskonum og stúlkum í margs konar vanda. Árið 1995 var El Shaddai barnaheimilið stofnað með hjálp íslenskra stuðningsaðila ABC og tekin inn 50 börn. 181 barn býr nú á heimilinu en auk þess rekur Comforter Ministries endurhæfingarheimili fyrir fyrrum vændiskonur og stúlkur sem hafa orðið fyrir ýmsum skakkaföllum. Vinna er nú hafin við byggingu kornabarnahúss við heimilið enda heimilið oft beðið um að taka að sér yfirgefin kornabörn.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is