Heimili litlu ljósanna

 

Heimili litlu ljósanna var stofnað af kristnum Indverja með stóra hugsjón og hjarta fyrir bágstöddum börnum. Heimili litlu ljósanna hefur verið rekið með fjármagni frá Íslandi frá árinu 1994. Þar búa nú um 2000 börn. Mikil uppbygging hefur átt sér stað við heimilið undanfarinn áratug og er fjölbreytt nám í boði fyrir þau börn og unglinga sem búa á heimilinu. Nýjasta verkefnið sem ABC barnahjálp hefur tekið að sér að fjármagna með hjálp stuðningsaðila eru kvöldskólar í fimmtíu Dalítaþorpum fyrir 1700 börn.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is