Starf Mission of Mercy á rætur að rekja til ársins 1954 er kristniboðarnir Mark og Huldah Buntain hófu að líkna fátækum og þurfandi í Kalkútta á Indlandi. Í dag starfar Mission of Mercy í yfir 30 löndum og yfir 75.000 börn fá hjálp og von í gegnum starf þeirra.
Mission of Mercy hefur verið samstarfsaðili ABC frá árinu 1991. Auk þess sem stuðningsaðilar ABC hafa stutt börn á vegum Mission of Mercy hefur ABC byggt tvö lítil barnaheimili í samstarfi við Mission of Mercy, annað í Kambódíu og hitt í Orissa héraði á Indlandi.
Á síðustu árum hefur ABC lagt aukna áherslu á staðina sem við sjáum alfarið um og bjóðum við því ekki lengur upp á þann valkost að styrkja ný börn frá Mission of Mercy. ABC mun að sjálfsögðu styrkja áfram þau börn þegar hafa fengið stuðning í gegnum Mission of Mercy eða þar til þau eru fær um að standa á eigin fótum. Við bendum þeim sem vilja kynna sér betur það mikla og góða starf sem Mission of Mercy stendur fyrir víða um heim að kynna sér heimasíðu þeirra, sjá tengil hér að neðan.
Smellið hér til að sjá heimasíðu Mission of Mercy.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is