Norræna barnahjálpin (Skandinaviska Barnmissionen) var stofnuð árið 1983 af Svíanum Sigvard Wallenberg heitnum. Árlega fá yfir 300.000 börn á Filippseyjum og í Úkraínu ýmis konar hjálp í gegnum starf Norrænu barnahjálparinnar. Yfirmaður Norrænu barnahjálparinnar er Bo Wallenberg sem tók við starfinu af föður sínum.
Norræna barnahjálpin hefur verið einn af samstarfsaðilum ABC frá árinu 1990. Í samstarfi við Norrænu barnahjálpina og með hjálp stuðningsaðila ABC fá í dag tæplega 600 börn úr fátækum fjölskyldum á Filippseyjum tækifæri til að mennta sig .
Smellið hér til að skoða heimasíðu Norrænu barnahjálparinnar.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is