Starfsemi ABC hjálparstarfs var með svipuðu sniði og árið á undan. Stuðningsaðilar voru um 2.700 í árslok. Styrktarbörnum fjölgaði úr 3.740 í 3925 börn á árinu. Lokið var við byggingu El Shaddai barnaheimilisins við Madras á Indlandi sem áður hafði tekist að fjármagna. Keyptur var jeppi fyrir heimilið og kojur fyrir börnin og byrjað var á að safna fyrir byggingu kornabarna- og starfsmannahúss fyrir heimilið. Byggður var verkmenntaskóli fyrir Heimili litlu ljósanna á Indlandi og forskóli var byggður við ABC skólann í Úganda. Einnig var lagður grunnur að nýrri barnaskólabyggingu fyrir ABC skólann í Úganda og lokið við tvær skólastofur á jarðhæð/kjallara hennar.
Á árinu 2003 voru tveir til þrír starfsmenn í hlutastörfum eða samtals í 1,2 til 2,2 stöðugildum.
Um 30-40 sjálfboðaliðar unnu við margvíslega skrifstofuvinnu, hönnun, prentun, forritun, sölu jólakorta, dreifingu bæklinga, aðstoð við safnanir, kaffisölu, endurskoðun o.fl. U.þ.b. 7.000 -8.000 vinnustundir voru gefnar á árinu. Aðrar óbeinar gjafir á árinu sem ekki koma fram í ársreikningi voru t.d. frí húsaleiga, rafmagn, hiti, pappír, prentun fréttabréfs, kassar, jólapakkar og fatnaður auk margs konar afsláttar af efni og þjónustu.
Fjármunir sem sendir voru til hjálparstarfa erlendis jukust um 10,8 % frá árinu áður.
Úthlutun samkvæmt skipulagsskrá til hjálparstarfa erlendis nam 93,2 milljónum króna og skiptist þannig:
Sent til Reach/ Heimilis litlu ljósanna á Indlandi vegna framfærslu og menntunar 1.710 barna, byggingu verkmenntaskóla og kaupa á landi fyrir heimilið...53.2 m.kr.
Sent til Comforter Ministries/ El Shaddai barnaheimilisins á Indlandi vegna framfærslu 171 barns og vegna kaupa á kojum fyrir börnin, jeppa og landi fyrir heimilið og tilvonandi byggingar kornabarna- og starfsmannahúss fyrir heimilið...13.4 m.kr.
Sent til Norrænu barnahjálparinnar vegna skólagöngu 593 barna á Filippseyjum...7.4 m.kr.
Sent til Uganda Australia Foundation vegna skólagöngu 1279 barna í Úganda og byggingar forskóla og grunns og tveggja skólastofa í nýrri barnaskólabyggingu...13,7 m.kr.
Sent til Mission of Mercy vegna skólagöngu 172 barna á Indlandi, Kambódíu,
Bangladesh og Rúmeníu...5,5 m.kr.
Reykjavík, 9. júlí 2004
Í stjórn:
Agnes Eiríksdóttir
Guðrún Margrét Pálsdóttir
Jenný Guðmundsdóttir
Ólafur Jóhannsson
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is