Starfsemi ABC hjálparstarfs var með svipuðu sniði og árið á undan. Stuðningsaðilar voru um 3200 í árslok. Styrktarbörnum fjölgaði úr 3925 í 4650 börn á árinu. Lokið var við að greiða fyrir nýtt land og haldið áfram að safna fyrir byggingu kornabarna- og starfsmannahúss fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi. Lögð var lokahönd á verkmenntaskóla fyrir Heimili litlu ljósanna á Indlandi og haldið áfram að safna fyrir nýju landi fyrir heimilið. Undirritað var samkomulag um samstarf milli ABC barnahjálpar og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og lagði ÞSSÍ fé til byggingar heimavistar fyrir stúlkur fyrir unglingastig ABC skólans í Úganda. Einnig var byggð fyrsta hæðin af fjórum í nýju skólahúsi með 22 skólastofum fyrir ABC skólann í Úganda og keypt flugnanet fyrir heimavist stúlkna og á annað þúsund dýnur fyrir börn í Úganda.
Á árinu 2004 voru þrír til fjórir starfsmenn í hlutastörfum eða samtals í 2,1 til 2,6 stöðugildum.
Um 30-40 sjálfboðaliðar unnu við margvíslega skrifstofuvinnu, hönnun, prentun, forritun, sölu jólakorta, dreifingu bæklinga, aðstoð við safnanir, kaffisölu, endurskoðun o.fl. U.þ.b. 7000 - 8000 vinnustundir voru gefnar á árinu. Aðrar óbeinar gjafir á árinu sem ekki koma fram í ársreikningi voru t.d. frí húsaleiga, rafmagn, hiti, pappír, prentun fréttabréfs, kassar, jólapakkar og fatnaður auk margs konar afsláttar af efni og þjónustu.
Fjármunir sem sendir voru til hjálparstarfa erlendis drógust saman um 2,5% frá árinu árður þar sem ekki var safnað í bauka í söfnuninni Börn hjálpa börnum þetta árið.
Úthlutun samkvæmt skipulagsskrá til hjálparstarfa erlendis nam 90,8 milljónum króna og skiptist þannig:
*Sent til Reach/ Heimilis litlu ljósanna á Indlandi vegna framfærslu og menntunar 2000 barna og frágangs vegna byggingu verkmenntaskóla og kaupa á landi fyrir heimilið ...42,7 m.kr.
*Sent til Comforter Ministries/ El Shaddai barnaheimilisins á Indlandi vegna framfærslu 180 barna, kaupa á landi fyrir heimilið og byggingu kornabarna- og starfsmannahúss ... 16,8 m.kr.
*Sent til Norrænu barnahjálparinnar vegna skólagöngu 581 barns á Filippseyjum ... 7,9 m.kr.
*Sent til Uganda Australia Foundation vegna skólagöngu 1736 barna í Úganda, byggingar nýs skólahúss fyrir ABC skólann og kaupa á dýnum og flugnanetum ... 19,8 m.kr.
Sent til Mission of Mercy vegna skólagöngu 152 barna á Indlandi, Kambódíu, Bangladesh og Rúmeníu ... 3,6 m.kr.
Stjórn ABC hjálparstarfs hefur staðfest ársreikning ársins 2004 með áritun sinni.
Reykjavík, 7. september 2005
Í stjórn hjálparstarfsins:
Elva Ósk Wiium
Guðni Einarsson
Guðrún Margrét Pálsdóttir
Helena Leifsdóttir
Ólafur Jóhannsson
Thomas Stankiewicz
Þórunn Helgadóttir
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is