Skýrsla stjórnar fyrir árið 2005

 

Starfsemi ABC barnahjálpar var með svipuðu sniði og árið á undan. Stuðningsaðilar voru 4006 talsins í árslok og fjölgaði um 806 á árinu. Styrktarbörnum fjölgaði úr 4650 í 5423 börn á árinu eða um 773 börn. Safnað var fyrir svefnskálum fyrir 800 drengi á Heimili litlu ljósanna á Indlandi og var lokið við að byggja fyrir um 400 þeirra. Keypt var ræktarland fyrir heimilið sem áður hafði verið safnað fyrir og keyptir 20 vatnabuffalóar til mjólkurframleiðslu. Greitt var fyrir háskólabyggingu sem byggð var árið áður fyrir heimilið. Byggt var starfsmannahús fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi og grafið fyrir kornabarnahúsi við heimilið. Í Úganda var byggð önnur og þriðja hæð nýja ABC skólans í Kitetika og byggður forskóli í Rackoko. Um tvö þúsund flugnanet voru keypt fyrir börn í Úganda. Að auki var lokið við byggingu heimavistar fyrir stúlkur í unglingaskólanum í Kitetika sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands kostaði sem samstarfsverkefni við ABC barnahjálp. ABC barnahjálp var formlega stofnuð í Pakistan síðla árs og hafin var uppbygging skólastarfs fyrir fátæk börn þar í landi.

 

Á árinu 2005 voru einn til þrír launaðir starfsmenn í samtals 1,0 til 2,4 stöðugildum. Starfsemin flutti úr Sóltúni 3 og opnaði skrifstofu ABC barnahjálpar í Síðumúla 29, 2. hæð

þann 1. mars. Á sama tíma var nýtt tölvukerfi tekið í notkun og starfsemin endurskipulögð með einum launuðum starfsmanni og fjölda sjálfboðaliða.

 

Um 30-40 sjálfboðaliðar unnu við margvíslega skrifstofuvinnu, hönnun, kvikmyndun á starfsvettvangi, myndbandagerð, prentun, pökkun og sölu jólakorta, dreifingu bæklinga, aðstoð við safnanir, kaffisölu, endurskoðun o.fl. U.þ.b. 7000-8000 vinnustundir voru gefnar á árinu. Aðrar óbeinar gjafir á árinu sem ekki koma fram í ársreikningi voru t.d. ókeypis húsaleiga, rafmagn, hiti, pappír, ljósritun, prentun fréttabréfs og ljósritunarvél auk margs konar afsláttar af efni og þjónustu.

 

Fjármunir sem sendir voru til hjálparstarfa erlendis jukust um 28,4% frá árinu áður.

Úthlutun samkvæmt skipulagsskrá til hjálparstarfa erlendis nam 116,6 milljónum króna og skiptist þannig:

 

Stjórn ABC barnahjálpar hefur staðfest ársreikning ársins 2005 með áritun sinni.

 

                                               Reykjavík, 20. júní 2006

 

Í stjórn hjálparstarfsins:

                                               Guðni Einarsson

                                               Guðrún Margrét Pálsdóttir

                                               Helena Kolbrún Leifsdóttir

                                               Helga S. Sigurðardóttir

                                               Kolbeinn Sigurðsson

                                               Thomas Stankiewicz

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is