• ABC barnahjálp styrkir í dag um 10.000 fátæk og umkomulaus börn með skólagöngu, læknishjálp, fæði og klæðum. Um  3500 þeirra barna fá fulla framfærslu og húsaskjól á heimilum ABC.
  • Þau verkefni sem ABC hefur staðið fyrir auk þess að sjá fyrir þurfandi börnum eru aðallega eftirfarandi:

 

  •  Ár

Verkefni 

2007

Pakistan
Úganda
Kenýa
Senegal
Líbería
Skólinn í Jaranwala Heimavist í Rackoko í Norður-Úganda Nýja vistin í Kenýa
Leiguhúsnæðið í Dakar Heimavistarbyggingin í Líberíu Landið fyrir mæðrahúsið

Byggður skóli í Jaranwala í Pakistan fyrir söfnunarfé frá Borgarholtsskóla
Lokið við byggingu heimavista fyrir 600 börn í Rackoko í N-Úganda
Fleiri hús bætast við vistina í Kenýa en nú eru þar í vistun um 200 börn
Athvar fyrir götubörn sett á fót í Senegal. Nú koma þar um 60 börn daglega
Uppbyggingin í Líberíu heldur áfram. Skóli og heimavist í byggingu.
Undirbúningur hafinn að byggingu heimilis fyrir unglings mæður og vöggustofa fyrir börnin þeirra
2006

Líbería

ABC var stofnað í Líberíu í desember og keypt land undir væntanlega starfsemi.
2006

Kenýa
Fyrsta heimavistarhúsið Þórunn með götustrákana fyrrverandi

ABC var stofnað í Kenýa síðla árs og hófst starf meðal götubarna og barna úr fátækrahverfum Nairobí í október, en heimili fyrir umkomulaus börn var opnað í desember.
2006

Pakistan
ABC skólinn í Farooqabcd ABC skólinn í Chak RB/96 ABC skólinn í Peshawar
Í Pakistan voru byggðir þrír ABC skólar auk þess em heimavistir voru settar á fót.
2006

Úganda
ABC skólinn í Kitetika Heimavist í smíðum í Rackoko Börn í nýrri kennslustofu

Í Úganda var byggð fjórða hæð nýja ABC skólans í Kitetika og haldið áfram með uppbygginguna í Rackoko þar sem hafist var handa við byggingu heimavista fyrir stúlkur. Að auki var lokið við byggingu álmu fyrir tilrauna- og tölvustofur við unglingaskólann í Kitetika sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands kostaði ásamt útvarpsstöð í Rackoko sem sem starfsverkefni við ABC barnahjálp.
 2006

Indland

Heimavist drengjanna Kvöldskóli í Dalítaþorpi Kornabarnahúsið í El Shaddai

  • Byggður seinni svefnskálinn fyrir fyrir 400 drengi á Heimili litlu ljósanna á Indlandi fyrir söfnunarfé úr söfnuninni börn hjálpa börnun 2005 
  • Settir voru á fót kvöldskólar í 10 dalítaþorpum til viðbótar þeim 10 sem fyrir voru.
  • Kornabarnahús var byggt við El Shaddai barnaheimilið við Chennai á Indlandi
 2005

 

Unnið að byggingu svefnskála fyrir 400 drengi á Heimili litlu ljósanna á Indlandi. Lokið við byggingu starfsmannahúss fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi. Hafið starf í Pakistan.

 2004-2005

 

Unnið að byggingu kornabarna- og starfsmannahúss fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi. Unnið við byggingu barnaskóla í Úganda.

 2003

 

Byggður verkmenntaskóli á Heimili litlu ljósanna. Byggður forskóli og lagður grunnur að barnaskóla í Úganda. 

 2002

  

Lokið byggingu El Shaddai barnheimilisins á Indlandi.

Unnið að byggingu unglingaskóla í Úganda.

2000-2001 Haldið áfram með byggingu El Shaddai barnaheimilisins. Komið á fót saumaskóla og menntaskóla og byggður nýr barnaskóli og tvær svefnálmur fyrir Heimili litlu ljósanna á Indlandi. 
1999-2000 Byrjað á byggingu íbúðarhúss fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi. 
1998-1999 Byggð fyrsta hæðin á kornabarnahúsi í Orissa á Indlandi. Byggt viðbótarhús við skólann í Úganda. Byggðar 20 starfsmannaíbúðir, 3 svefnskálar fyrir stúlkur og hús fyrir drengi á Heimili litlu ljósanna á Indlandi.
 1997-1998 Keypt land fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi. 
1996-1997 Byggður skóli og hreinlætisaðstaða fyrir Heimili litlu ljósanna á Indlandi. Keypt húsnæði og land fyrir skólabyggingu í Úganda og unnið að stækkun skólans. 
1995-1996 Byggt íbúðarhús og keypt land fyrir Heimili litlu ljósanna í Andhra Pradesh héraði á Indlandi. 
1995 Stofnað heimili fyrir götubörn í Madras/Chennai á Indlandi. 
1993-1994 Þátttaka í byggingu neyðarþorps í Úganda fyrir alnæmismitaðar ekkjur með ung börn. 
 1992-1993 Bygging barnaheimilis í Kambódíu 
 1990 Lestrarkennsluverkefni fyrir Nyaboa þjóðflokkinn á Fílabeinsströndinni 
 1989 Lestrarkennsluverkefni og prentun lestrarkennslubóka fyrir tvo indíanaþjóðflokka í Mexíkó, Popoloco-Atzingo og Jalapa-Mazatec indíána.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is