Fálkaorða

 


Á nýársdag árið 2004 var frumkvöðull ABC, Guðrún Margrét Pálsdóttir, sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Þetta er mikil viðurkenning fyrir ABC barnahjálp og hugsjónina sem starfið stendur fyrir. Mikill árangur hefur náðst á þeim árum sem liðin eru frá stofnun starfsins og er þeim fjölmörgu sem lagt hafa hönd á plóginn í starfinu gegnum árin bæði sjálfboðaliðum, starfsmönnum, stjórn og styrktaraðilum þakkað fyrir framlag sitt. Þessu grettistaki hefði aldrei verið lyft án allra þessara aðila.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is