Jólagjafasjóður

Við viljum benda fólki sem vill gefa barninu sínu jólagjöf að leggja inn á jólagjafasjóðinn eða greiða valgreiðaluseðilinn sem sendur var til allra stuðningsaðila í byrjun desember. Jólagjafasjóðurinn tryggir að öll styrktarbörnin fái  jólagjöf. Einnig þau sem hafa ekki fengið stuðningsaðila. Jólagjafirnar eru sagðar frá stuðningsaðilum barnanna. 

 

Númer jólagjafasjóðsins

Reikningur fyrir jólagjafir er 0537-26-6906
Kennitala: 690688-1589


Jólakort til styrktarbarna

Þeir sem vilja senda börnum sínum jólakort senda þau beint á heimilisföng samstarfsaðila ABC í viðkomandi landi, sjá lista yfir heimilisföng styrktarbarna hér á heimasíðunni. Utan á umslagið er sett heimilisfang skólans/ heimilisins þar sem barnið dvelur og erlent númer barnsins (ekki nafn). Inn í umslagið er sett nafn og númer barnsins. Það ætti að tryggja að barnið fái kortið.
Börnin hafa gaman af að fá ljósmyndir af styrktarfjölskyldu sinni, en því fyrirferðarminna sem umslagið er því meiri líkur eru til þess að það komist á leiðarenda í póstinum.

Pakkasendingar

Pakkasendingar ekki æskilegar. Ástæðan er sú að oft eru háir innflutningstollar eru af öllu sem sent erog einnig er erfitt að mismuna börnunum ef eitt barn fær gjöf en annað ekki. Gjafasjóðurinn leysir vandann þar sem gjafir eru keyptar fyrir öll börnin fyrir það sem til er í sjóðnum og viljum við því leggja áherslu á gjafasjóðinn.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is