Hér má skoða blogg sem Gullý heldur úti í Burkina Faso fyrir vini og vandamenn http://hinrikoggully.123.is/
ABC hefur hafið starf í Bobo í Burkina Faso. Settur hefur verið á fót skóli fyrir 148 börn og eru byggingarframkvæmdir við nýtt skólahúsnæði að hefjast. Fyrir starfinu fara hjónin Guðný Jónasdóttir og Hinrik Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðuhjón Hvítasunnukirkjunnar í Kirkjulækjarkoti. Þeir sem áhuga hafa á því að styrkja uppbygginguna í Burkina Faso er bent á reikningsnúmerið 1155-15-044007 kt. 6906882589
Áætlað var að hefja bggingarframkvæmdir snemma á árinu 2009. Búið var að úthluta landi fyrir ABC, kaupa sement og sand og taka fyrstu skóflustungu og ráða verktaka til að vinna verkið. Daginn eftir var allt dregið til baka vegna misskilnings og deilna milli borgarstjóra og hverfisstjóra. Það fór því allt í bið en haldið var áfram að vera í stöðugu sambandi við hverfisstjóra. Landið var svo loksins afhent í febrúar 2010 og hófust byggingarframkvæmdir þegar í stað.
Unnið var að endurbætum og uppbyggingu þess skólahúsnæðis sem við höfum að láni. Byggt var lítið hús sem notað er fyrir eldunaraðstöðu og aðstöðu fyrir húsvörð. Einnig var sett upp gott skýli sem notað er fyrir matsal og fundarhöld með foreldrafélagi. Skýlið var byggt fyrir gjafafé frá hollenskri stúlku. Einnig var útbúin góð salernis aðstaða.
Í september voru 50 ný börn tekin inn í skólann til viðbótar við þau 98 sem fyrir voru. Í skólanum eru því 148 börn. Styrkur frá Nytjamarkaður hvítasunnukirkjunnar á Selfossi hjálpar til við að borga skólagjald fyrir þessi viðbótarbörn þangað til stuðningsaðilar taka þau að sér. Fenginn var einn kennari til viðbótar við hina tvo og einn aðstoðarmaður. Heilsugæslu hefur verið vel sinnt en mörg börnin voru með ljót sár og veik í haust þegar þau komu í skólann. Sárin eru flest gróin og við kjarngóða matinn hennar Naomi hafa þau braggast vel. Skólastarfið gengur mjög vel.
Í október keyptum við land sem við borgum sjálf. Þar kemur foreldrafélagið til með rækta mat fyrir skólann undir leiðsögn matráðskonunnar okkar. Mikill áhugi er fyrir þessu hjá foreldrafélaginu og vilja þau sýna þakklæti sitt fyrir það sem ABC hefur gefið þeim. Nokkrir aðilar í Englandi vilja gefa geitur og hænur til skólans.
Jafnframt skólastarfinu stofnuðum við örlánasjóð fyrir mæður barnanna í skólanum og fleiri konur. Alls hafa 46 konur fengið lán úr þessum sjóði sem heitir ?Le Fond de Dignitie? sem þýðist á íslensku sem virðingarsjóðurinn. Ýmsir aðilar á Íslandi hafa gefið fé í þennan sjóð og er ætlunin að hjálpa fleiri konum. Þær reyna síðan að ávaxta féð með því að setja upp einhversskonar smá verslun eða framleiðslu. Lánið er svo greitt niður á 4 mánuðum og er fyrsta greiðsla komin hjá þeim öllum.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is