Skólaaðstoð

ABC barnahjálp hefur styrkt fátæk börn til náms á Filippseyjum frá árinu 1990.

Auk þess að reka forskólann er ABC barnahjálp í gegnum  Norrænu barnahjálpina með stuðningskerfi fyrir börn frá barnaskóla og allt upp í háskóla. Börnin koma úr hverfunum San Juan, Quezon City, Cagayan og Tacloban og ganga í mismunandi ríkisskóla. Með stuðningi stuðningsaðila frá Íslandi fá börnin og fjölskyldur þeirra mánaðarlega upphæð sem notuð er til að borga fyrir skólabúning, skólabækur, mat, flutning (strætó) í og úr skóla og afmælisgjafir fyrir barnaskólabörnin. Auk þess fá háskólanemendurnir ákveðna upphæð í byrjun hverrar annar sem borga hluta skólagjaldanna. Mörg barnanna hafa nú lokið háskólanámi


Fjölskylduhagir: Fjölskyldur barnanna sem ABC styður á Filippseyjum eru mjög fátækar. Þær búa flestar við ruslahaugana í Manila í hreysum byggðum úr spítnarusli með bárujárnsþaki og moldargólfi. Fæstir hafa rennandi vatn né rafmagn. Eldunaraðstöðu er yfirleitt deilt með mörgum öðrum fjölskyldum og þvotturinn er þveginn í húsasundum. Kynferðisleg misnotkun er mjög algeng í Manilla. Fæstar þessara fjölskyldna hafa efni á því að senda börnin sín í skóla því allur peningur sem fjölskyldan vinnur sér inn fer í mat.



ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is