Dalítaþorpin á Indlandi eru yfirleitt lítil, afskekkt og gríðarlega fátæk. Dalítar eru stéttleysingjar sem eru lægst settir allra íbúa Indlands. Stéttleysingjar eru um 15-20% landsmanna og eiga sér litla von um betra líf nema með menntun.
Þeir búa gjarnan í moldarkofum með stráþökum, án rennandi vatns, salernisaðstöðu og rafmagns. Vatn er oft tekið úr nálægum stöðuvötnun og getur þurft að ganga langa leið til að sækja það.Í þorpunum eru yfirleitt ríkisreknir skólar en mjög oft þurfa foreldrarnir að láta börnin vinna fyrir lífsnauðsynjum fjölskyldunnar í stað þess að senda þau í skóla. Einnig hafa þeir ekki efni á að kaupa nauðsynleg skólagögn.
ABC barnahjálp hefur nú stofnað svokallaða kvöldskóla í 20 þessara þorpa. Í gegnum fósturforeldrakerfið getum við styrkt foreldra til að senda börnin sín í skóla. Fjölskyldurnar fá þá styrk til þess að kaupa skólagögn, mat, hreinlætisvörur og ábreiður. Þessi styrkur er um það bil 1/3 af heildartekjum fjölskyldunnar.
Börnin fá einnig hjálp með heimavinnu frá kennara í 2ja tíma "kvöldskóla" í þorpskirkjunni eða undir berum himni og þar fá þau einnig hressingu. Þetta hefur orðið til þess að fjöldi barna þarf ekki lengur að vinna heldur fær tækifæri til að ganga í skóla.
Markmið ABC barnahjálpar er að stofna kvöldskóla með samskonar stuðningskerfi í allt að 200 Dalítaþorpum.
![]() | |
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is