El Shaddai barnaheimilið

Sjá hér myndir teknar í ferð starfsmanna ABC til El Shaddai  í Mars 2010

Apríl 2010

Starfsmenn ABC eru nýkomnir heim úr heimsókn á El Shaddai heimilið í Chennai á Indlandi.

Ferðin var frábær og vorum við mjög sáttar við allt sem við sáum. Það er augljóst að vel er hugsað um börnin á heimilinu. Þó þau séu mörg njóta þau ástar og umhyggju frábærs starfsfólks. Grace Alexander forstöðukona heimilins er algjörlega gefin þessu starfi. Hún býr og sefur hjá börnunum og þau kalla hana öll mömmu.

Á heimilinu búa 230 börn sem hefur verið bjargað frá ömurlegu lífi á götunni.

Þó þröngt sé í búi vegna gengisfellingu krónunnar og ýmis brýn verkefni þarfnis fjármagns, fá börnin alltaf þrjár máltíðir á dag. Þau eru hrein og ganga í hreinum fötum. Mikið er lagt upp úr náminu og eins og er eru aðeins 12 börn að meðaltali í hverjum bekk. Það kemur til af plássleysi en skólinn er starfræktur í sama húsi og heimilið. Það er orðið mjög brýnt að byggja skólahús því þetta fyrirkomulag er ólöglegt og mjög óþægilegt fyrir börnin.

Ákveðið hefur verið að afrakstur söfnunarinnar Börn hjálpa börnum 2010 sem nú er nýyfirstaðin verði notaður til byggingar nýs skóla fyrir börnin á El Shaddai heimilinu. Við gerum þó ekki ráð fyrir að söfnunin ein nægi fyrir byggingunni svo ef einhverjir finna það hjá sér að taka þátt í fjármögnun skólabyggingarinnar væri það mjög vel þegið.


Heimilið er í um 50 km fjarlægð frá borginni Chennai, sem áður hét Madras og er í Tamil Nadu á suð-austurströnd Indlands. Á heimilinu búa 230 börn í nýju húsi sem byggt var að mestu leyti fyrir fé sem íslensk grunnskólabörn söfnuðu í bauka í söfnuninni Börn hjálpa börnum.  Eva Alexander er forstöðukona og stofnandi Comforter Ministries sem rekur heimilin og annast börnin fyrir fé frá íslenskum stuðningsaðilum ABC barnahjálpar.

The Comforter starfið í Chennai á Indlandi lauk sínu 29. starfsári á árinu 2009. Á El Shaddai heimilinu búa nú 230 börn. Flesum þeirra hefur verið bjargað af götunni, frá hungry, illri meðferð og misnotkun. Af þeim ganga 160 börn í ABC grunnskólann sem rekinn er í sama húsi. Eldri börnin 70 talsins ganga í unglingaskóla eða framhaldsskóla utan heimilisins. Comforter rekur einnig athvarf fyrir götubörn í miðborginni.


a)
ABC skólinn.

ABC skólinn er mjög mikilvægur fyrir starfið þar sem ekki er hægt að setja börn sem koma beint af götunni í almennan skóla. Fæst þeirra hafa gengið í skóla áður ekki er hægt að setja þau í bekk eftir aldri því það þarf að byrja á því að kenna þeim undirstöðuatriðin. Vegna fárskorts hefur ekki enn verið hægt að byggja grunnskóla fyrir El Shaddai börnin. ABC skólinn er því rekinn til bráðabirgðar á heimilinu. Börnin þurfa að búa við mjög þröngar og erfiðar aðstæður. Samkvæmt landslögum mega skólar ekki vera starfræktir í sama húsi og heimili og hefur El Shaddai verið á undanþágu í mörg ár. Nú er svo komið að yfirvöld hóta að loka skólanum nema byggt sé viðunnandi húsnæði fyrir hann.


b)
El Shaddai heimilið

Eins og fram hefur komið hýsir húsnæðið bæði skóla og heimili fyrir 230 börn. Þau fá fæði, klæði og læknisþjónustu. Heimilinu er skipt niður í þrjár stórar vistir og tvær minni vistir. Á hverri stórri vist búa u.þ.b. 30 börn. Yngri börnin búa í barnahúsinu. Þar sem skólaborð og bekkir taka mikið pláss er mjög lítið pláss eftir til að sofa og athafna sig. Nauðsynlegt er að skipta unglingunum niður á vistir eftir kyni sem kallar eftir auknu plássi. Húsnæðið sem var byggt fyrir 12 árum er farið að þarfnast mikils viðhalds. Nauðsynlegt er að byggja vegg í kringum heimilið vegna þjófa og villidýra sem stundum eiga leið um svæðið. Gera þarf við brotna glugga og rotþróin er orðið mikið vandamál Einnig er nauðsynlegt að setja upp sólar sellur til þess að geta haft ljós á vistunum eftir að skyggja tekur.


c)
Athvarfið

Til þess að ná til götubarna var götuathvarfið sett á laggirnar 2004. Það er staðsett í hjarta borgarinnar í Koyambedu. Daglega koma um 50 börn í athvarfið en ekki er hægt að taka á móti fleirum vegna plássskorts. Í Skólaathvarfinu fá börnin að borða, þau geta hvílt sig, fá læknisskoðun, fræðslu, geta horft á uppbyggilegt sjónvarpsefni og umfram allt upplifa þau ást og umhyggju sem þau hafa aldrei upplifað áður. Breytingin á börnunum er kraftaverki líkast. Mörg barnanna sem vöndu komur sínar í athvarfið hafa fengið að flytja inn á heimilið. Von okkar er að geta rekið umbreytingarathvarf þar sem götubörnin geta búið meðan við undirbúum þau undir það að flytja inn með hinum börnunum.


Fréttabréf júní 2009

Íbúðarhúsið sem íslensk grunnskólabörn söfnuðu fyrir Hér búa yngri börnin
Það er ekki pláss fyrir borð og stóla
Eva Alexander Börnin biðja fyrir stuðningsaðilum sínum á Íslandi
Smábarnahópur Þessi börn hafa verið yfirgefin af mæðrum sínum
Ungabörn á El Shaddai Börnin að læra

               

         

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is