Heimili litlu ljósanna

sjá hér bloggsíðu frá Heimili litlu ljósannahttp://abcchildren.over-blog.com/
 

Heimili litlu ljósanna er í Gannavaram sem er í um 20 km fjarlægð frá borginni Vijayawada í Andhra Pradesh á suð-austurströnd Indlands. Heimilið var stofnað árið 1992 af kristnum Indverja sem gat ekki lengur horft upp á heimilislaus börn þjást á götunum. Með hjálp íslenskra stuðningsaðila ABC búa nú um 2800 börn á Heimili litlu ljósanna.

Heildarfjöldi stuðningsbarna hjá Reach árið 2009 voru 3953 börn. Þar af voru 1130 kvöldskólabörn sem búa hjá fjölskyldum sínum í Dalítaþorpunum.


Reknir eru 6 skólar á Heimili litlu ljósanna:

§ Grunnskólinn (1.-6. bekkur) með 710 nemendur

§ Unglingaskóli fyrir drengi í 7.-10. bekk með 720 nemendur

§ Unglingaskóli fyrir stúlkur í 7.-10 bekk með 967 nemendur

§ Framhaldsskóli (bóknámsbrautir) með 219 nemendur

§ Iðnskóli með 207 nemendur

§ Háskólinn (Bsc, BA, Bcom nám) með 210 nemendur.


Alls bjuggu 2823 börn á heimavistum Litlu ljósanna á árinu 2009. Nemendurnir koma öll úr lægstu stéttum þjóðfélgasins. Þau koma úr erfiðum aðstæðum; voru , götubörn, munaðarlaus, eða börn einstæðra foreldra sem höfðu yfirgefið þau eða gátu ekki séð fyrir þeim. Við hjálpum þessum börnum að setja sér markmið á öllum sviðum, veitum þeim góða aðstöðu; umhyggju, fæði, klæði og heilsugæslu.


§ Heimavistunum er skipt niður í þrjár megin vistir sem síðan er skipt niður í smærri einingar til að gera þær heimilislegri fyrir börnin. Nemendum er skipt niður á vistirnar eftir aldri og kyni. Öryggi þeirra, heilbrigði og hamingja er höfð að leiðarljósi við alla ummönnun.

§ Hver eining hefur sitt eigið mötuneyti og heilsugæslu. Frábært starfsfólk sér um að þörfum barnanna sé mætt jafnt á nóttu sem degi.

§ Í hverju húsi er loftkæling og moskítónet fyrri guggum. Börnin hafa hvert sína dýnu, kodda, teppi, handklæði og föt til skiptana. Um helgar geta þau horft á bíó og á vistunum þeirra eru sjónvörp sem þau geta horft á í frítíma.

§ Heimilið rekur eigin búgarð og grænmetisræktun. Þar erum við með buffala sem gefa mjólk fyrir heimilið, kjúklingarækt og hænur sem sjá okkur fyrir eggjum. Börnin fá þrjár næringaríkar máltíðir á dag.

§ Heilsugæsla barnanna er forgangsatriði á Heimili litlu ljósanna. Öll börnin fara reglulega í lækninsskoðanir. Tveir læknar sjá um að þjónusta börnin. Þegar þau koma fyrst á heimilið eru þau mörg hver með alls kyns sjúkdóma og kvilla og fá þau viðeigandi meðferðir þegar í stað. Fjórir hjúkrunarfræðingar og bráðaliðar sinna bráðatilfellum allan sólarhringinn.

§ Við leggjum áherslu á að kenna börnunum gildi menningar okkar og skipuleggjum ýmsa menningarviðburði. Á þessa viðburði bjóðum við tignargestum úr bæjarfélaginu. Börnin okkar hafa unnið til margvíslegra verðlauna fyrir myndlist, leiklist, tónlist ofl.

§ Lögð er mikil áhersla íþróttir og leiki og boðið er upp á góða aðstöðu til íþróttaiðkana. Börnin okkar hafa unnið til margra verðlauna m.a. í blaki, badminton, kho kho og kabaki. Í ár stóðum við fyrir héraðsleikum á heimilinu sem tókust afskaplega vel.

§ Við erum afskaplega stolt og ánægð með árangur nemendanna okkar. Háskólinn, framhaldsskólinn og verkmenntaskólinn eru í efsta sæti í borginni þegar kemur að einkunnum úr samræmdum prófum sem nemendurnir taka í lok hvers skólastigs. Meðaltalið er yfir 8,5. Árangur í samræmdum prófum úr 10. bekk eru einnig til fyrirmyndar með meðaltalseinkunn 8.0. Alls hafa 1242 nemendur lokið námi og útskrifast úr skólunum okkar. Þeir hafa allir fengið vinnu og hafið árangursríkt líf. Þeir eru stolt ABC barnahjálpar.


Kvöldskólarnir:
Auk heimavistaskólanna eru reknir kvöldskólar í 50 Dalítaþorpunum í nágreninu. Flest barnanna sem búa í þessum þorpum höfðu ekki aðgang að góðri menntun og mörg þorpanna hafa engan skóla. Vegna mikillar fátæktar er skólaganga barnanna ekki forgangsatriði hjá foreldrum og oftast eru börn send að vinna frá unga aldri. Við hvetjum foreldra til að senda börnin sín í skólana og bjóðum þeim ókeypis máltíðir, skólabækur, ritföng og hreinlætisvörur.

Börnin eru mjög ánægð og áhugasöm og fáum við góðar skýrslur frá kennurunum, foreldrum og þorpsleiðtogum. Börnin hafa tekið miklum framförum bæði hvað varðar menntun og heilsufar.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is