Stöð 2 kl 19:40
Með vonina að vopni: ABC í Kenya
Logi Bergmann Eiðsson og Einar Árnason heimsækja á ný Þórunni Helgadóttur í Nairobi, höfuðborg Kenya og sjá hvernig starfið gengur með börnum af götum borgarinnar. Hvernig gengið hefur í gegnum borgararastyrjöld í Naírobi og bankahrun á Íslandi. Við fáum að kynnast ótrúlegu starfi Þórunnar við erfiðar aðstæður en með vonina að vopni.
ABC barnahjálp hóf starf í Kenýa í október 2006. Starfið er fyrst og fremst meðal munaðarlausra og fátækra barna í Mathare dalnum sem er elsta og eitt verst stadda fátækrahverfið í Nairobi í Kenýa. Mathare fátækrahverfið er þriðja stærsta fátækrahverfi Afríku. Í Mathare búa um 800 þúsund manns í dal sem er á stærð við Fossvogsdalinn. Fólkið býr við hræðilegar aðstæður í bárujárnsskúrum án rafmagns og hreinlætisaðstöðu. Sóðaskapurinn er gríðarlegur og lyktin er ólýsanleg.
Þriðji hver fullorðinn einstaklingur er HIV smitaður. Mjög mörg börn eru því munaðarlaus, búa á götunni og ganga ekki í skóla.
Hverfið hefur hvorki rafmagn né rennandi vatn og skolpið rennur ofanjarðar. Munaðarlaus börn eru fjölmörg og gríðarleg neyð víða. Þórunn Helgadóttir stýrir starfinu í Kenýa og hefur þegar komið upp heimavistum og skóla.
Sjá heimasíðu ABC í Kenya hér http://ke.abc.is/
Í apríl fór hópur af Íslendingum sem lokið höfðu námi í ABC skólanum í vettvangsferð til Nairobi. Þau voru öll sammála um að ferðin hefði verið lífbreytandi fyrir þau. Á eftirfarandi pdf. skjölum eru áhugaverðir pistlar og dagbókarbrot sem nemendurnir skrifuðu í ferðinni.
Saga Erics Omollo
Ungir blaðamenn í Star of Hope skólanum
Kenyafararnir
Fátækrahverfin í Nairobi
Haustið 2006 hóf ABC barnahjálp hjálparstarf í Nairobi. Þórunn Helgadóttir og eiginmaður hennar, Kenyamaðurinn Samuel Lusiru Gona, veita starfinu forstöðu. Í miðju Mathare fátækrahverfinu sem er eitt stærsta fátækrahverfi borgarinnar reka þau heimavist fyrir 150 börn. Stór hluti barnanna á heimavistinni eru fyrrverandi götudrengir sem sváfu á götunni, betluðu, stálu og sniffuðu lím. Þessir drengir stunda núm námið af kappi og umbreytingin á þeim er algjört kraftaverk. Auk reksturs heimavistarinnar eru um 400 fátæk börn í hverfinu stutt til að ganga í skóla. Í skólanum fá þau læknisþjónustu, heitan mat, skólabúning. Einni fá þau hjálp við heimanám og ýmsa afþreyingu eftir skóla í skólaathvarfi sem rekið er af ABC. ABC styður alls um 550 börn í Naíróbí.
![]() |
![]() |
| Þórunn og fyrrverandi götustrákar | |
![]() |
![]() |
| Lífið í fátækrahverfinu | |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| Skítugir götudrengir | Lífið í "slumminu" er mjög dapurlegt |
![]() |
![]() |
| ABC skólabörnin eru glöð og sælleg yfir því að hafa eignast | nýja von |
![]() | |
| Fótboltaliðið | Fótboltaleikur fyrir utan heimavistarskólann Star of Hope |
![]() |
![]() |
| Star of Hope | Litlu krílin á heimilinu |
![]() |
![]() |
| Strákarnir inni á heimilinu | Það er oft mikið fjör |
![]() |
|
| Hér er verið að dansa | |
| Strákarnir eru sísvangir |
![]() |
![]() |
| Frá verðlaunaafhendingu í Bishop Kitonga skólanum |
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is