ABC barnahjálp var stofnuð í Líberíu í janúar 2007. Velferðarsjóður barna hefur verið einn aðal bakhjarlinn við uppbyggingu starfsins í Líberíu auk Færeyinga sem hafa kostað skólabyggingu auk þess að sjá fyrir mánaðarlegri framfærslu barnanna.
Matthew Sakeuh sem stýrði starfi ABC í Líberíu í byrjun hefur verið sagt upp störfum vegna trúnaðarbrests og hefur Hilda Videro frá Færeyjum tekið að sér að leiða starf ABC barnahjálpar í Líberíu ásamt dyggri hjálp innfæddra starfsmanna ABC. Á meðan að leyst er úr ágreiningi hefur ABC sett upp lítið barnaþorp í Monrovíu þar sem Færeyingar sjá fyrir á fjórða tug munaðarlausra barna en allt útlit er fyrir að hægt sé að halda áfram uppbyggingu starfsins á landi ABC í sumar.
2010
Í eftirlitsferð til Líberíu í janúar 2010 var ákveðið að Hilda Viderö frá Færeyjum myndi dvelja einhvern tíma í Líberíu og fór hún aftur í apríl sama ár og dvaldi þar í 3 mánuði við kennslu, þjálfun og eftirlit.
2009
Í janúar 2009 fór leiðangur Færeyinga ásamt Guðrúnu Margréti Pálsdóttur til Líberíu. Leiðangurinn samanstóð af tveimur stjórnarmönnum ABC í Færeyjum ásamt utanríkisráðherra Færeyja, aðstoðarmanni hans og tveimur sjónvarpsmönnum. ABC barnahjálp var stofnuð í Líberíu í byrjun árs 2007 og voru þá fest kaup á stórum landskika til að byggja upp starfsemina. Miklar byggingaframkvæmdir hafa verið í gangi á árunum 2007-2009 og hafa Færeyingar kostað skólabyggingu þarna en Íslendingar flestar aðrar framkvæmdir, m.a. að leggja veg að landinu, byggja brunn, heimavistir, eldhús og matsal.
Um klukkustundar akstur er frá flugvellinum inn í höfuðborgina og sagði bílstjórinn ýmislegt um skólamálin í landinu. Ríkisskólarnir eru afar lélegir með allt að 120 nemendum í bekk og kennararnir illa launaðir. Skólarnir eiga að heita ókeypis, en börnin þurfa að koma með allt að heiman og/eða borga allt, s.s. laun kennara, stól til að sitja á, blek, blöð, salernispappír o.s.frv. Atvinnuleysi er um 85% og fátækt og atvinnulaust fólk hefur ekki efni á að senda börnin sín í skóla.
Farið var á fund ýmissa ráðherra, meðal annars menntamálaráðherra, sem sagði að meginvandamálin væru skortur á skólum, skortur á menntuðum kennurum og úrræðaleysi í yfirstjórn menntamála. Það væri ekki hægt að krefjast þess að foreldrar sendu börn sín í skóla þar sem skóla vantaði fyrir svo mörg börn. Ólæsi er um 70% og aðeins 40% starfandi kennara hafa tilskylda menntun. Vegna 15 ára borgarastyrjaldar, sem lauk 2003, missti heil kynslóð af skólagöngu.
Þörfin fyrir hjálp við Líberíu er gríðarleg og fann hópurinn fyrir afar miklu þakklæti í garð ABC barnahjálpar. Áhugi stjórnvalda og velvilji var greinilegur en ferðinni lauk á því að forseti Líberíu, Ellen Sirleaf Johnson, kom í heimsókn út á landið með fylgdarliði og skoðaði byggingarframkvæmdir og heilsaði upp á börnin. Hún þakkaði ABC barnahjálp, Íslendingum og Færeyingum fyrir að koma á þessum tíma til Líberíu og vera með í uppbyggingu landsins sem er svo mikil þörf á einmitt á þessum tíma. Hjálp eins og ABC veitir með byggingu skóla og heimavista fyrir nauðstödd og þurfandi börn eru liður í að skapa von og þannig viðhalda friði og stöðugleika í landinu.
![]() |
![]() |
| Guðrún Margrét í góðum félagsskap ABC skólabarna |
Móttökuhátíðin |
![]() |
![]() |
| Forseti Líberíu Ellen Sirleaf Johnson heimsækir starfið |
Ein flott |
![]() |
![]() |
| Heimsókn í fátækrahverfin |
Guðrún Margrét í heimsókn hjá heimamönnum |
![]() |
![]() |
| Á fundi með menntamálaráðherra Líberiu |
ABC skólabörnin í fínu bolunum sínum |
| Eftirfarandi eru myndir frá upphafi starfsins í Líberíu | |
| Heimavist opnuð í bráðabirgðahúsnæði | Börnin á heimavistinni |
| Skólataflan | svefnaðstaðan |
![]() |
![]() |
| Heimavistin að rísa | |
| Fyrsta skóflustungan að skólanum | Grunnurinn að heimavistinni |
| Nýja heilsugæslustöðin langt komin | Grafið fyri grunni að skólanum |
| Hér er verið að mylja grjót til byggingarinnar | Allt er unnið frá grunni - hér er múrsteinagerð í gangi |
| Múrsteinagerð | Brunnurinn tilbúinn. Hann nýtist einnig fólkinu í nágrenninu |
![]() |
![]() |
| Bygging vélageymslu og starfsmannaaðstöðu | Vélageymslan tilbúin |
![]() |
![]() |
| landið rutt | ABC skiltið á landinu |
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is