Þann 4. maí lagði Varðskipið Ægir upp að höfninni í herstöðinni í Dakar í Senegal með gáminn frá ABC. Starfmenn ABC barnahjálpar í Senegal mættu á svæðið og tók áhöfn Ægis einstaklega vel á móti þeim. Góðviljaður liðsforingi hjá Senegalska hernum hleypti þeim í gegn með allt dótið án þess að rukka krónu í toll sem okkur vitanlega hefur aldrei þekkst fyrr.
Sendingin vakti gríðarlega mikla lukku meðal barnanna og mun dótið nýtast mjög vel.
ABC í Senegal vill koma á framfæri innilegum þökkum til allra sem brugðust svo skjótt og vel við beiðninni og gáfu dót.
Hér er hægt að skoða myndasyrpu frá Senegal þegar dótið kom í hús
http://picasaweb.google.fr/JDMwam/DonationsFromIceland?feat=directlink.
Áhöfn varðskipsins Ægis fór heimsótti ABC skólann og átti áægjulegan dag með börnunum.
Á heimasíðu landhelgisgæslunnar eru skemmtilegar myndir frá heimsókninni. Sjá hér http://lhg.is/frettirogutgafa/frettir/nr/1630
Þriðjudaginn 20. mars sigldi Ægir, varðskip landhelgisgæslunnar, af stað til Senegal með fullan gám af dóti sem safnaðist fyrir ABC skólann í Senegal. Viðbrögðin sem við fengum við söfnunarbeiðni okkar voru alveg meiriháttar og safnaðist meira en hægt er að senda af fötum, leikföngum, skóladóti ofl. Það sem ekki fer með skipinu núna býður næstu sendingar eða verður selt á Nytjamarkaðnum sem rekinn er til styrktar ABC. Við þurfum að safna fyrir tollagjöldum sem nauðsynlegt er að greiða við komuna til Senegal.
Við erum afskaplega þakklát fyrir þann mikla velvilja og hlýjug sem við mættum og þökkum Landhelgisgæslunni og öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem brugðust svona fljótt við beiðni okkar.
Þau fyrirtæki sem styrktu okkur með ýmsum vörum voru:
Næstkomandi þriðjudag 20. apríl fer Landhelgisgæslan með varðskip til Senegal. Þau hafa verið svo vinsamleg að bjóða ABC barnahjálp að senda dót fyrir skólann okkar í Dakar með skipinu.
Við höfum fengið lista yfir það sem skólinn þarfnast mest og þar sem við höfum mjög knappan tíma til að safna þessu saman langar okkur að vita hvort þið eigið eitthvað vel með farið í geymslum sem þið myndum vilja gefa.
Það sem vantar færi frábært að fá er eftirfarandi:
Vinsamlegast hafið samband við Margréti í síma 4140992 eða með því að svara þessu maili. Við munum taka á móti dótinu næstkomandi föstudag 16. apríl frá kl 13:00-18:00 í Nytjamarkaðnum Skútuvogi 11.
Í höfuðborg Senegal, Dakar, er mikill fjöldi götubarna að betla pening. Stór hluti þessara barna eru fórnarlömb barnaræningja. Þau hafa verið tæld frá fátækum foreldrum sem búa í sveitaþorpum í nágrannaríkinu Guinea Bissau. Þeim hefur verið lofað menntun og góðu lífi en í stað þess eru þau barin, rekin á göturnar og látin betla pening. Þau þurfa að skila ákveðinni upphæð á hverju kvöldi til glæpagengisins annars hafa þau verra af. Þau búa við ömurlegar aðstæður og hafa enga möguleika á því að komast heim aftur þar sem þau eru réttindalaus og vegabréfslaus.
José og Marli da Silva eru frá Brasilíu. Þau hafa starfað í 16 ár við að hjálpa götubörnum í Guinea Bissau og í Dakar. Í september 2007 hófu þau að starfa fyrir ABC í Senegal. Þau hafa tekið á leigu húsnæði sem þau nota sem athvarf fyrir þessi börn. Allan daginn taka þau á móti götubörnum sem koma til að fá mat og menntun, ást og umhyggju, hjúkrun, hrein föt og geta farið í sturtu. Þau eru einni með kennslu fyrir fátæk nágrannabörn.
Starfsemi ABC barnahjálpar í Dakar í Senegal felst í eftirfarandi:
Skólaárið 2008-2009 stunduðu alls 85 börn nám í ABC forskólanum. Í haust fjölgaði þeim í 149. Börnin í skólanum koma frá mjög fátækum fjölskyldum sem ekki hafa efni á því að senda börnin í skóla. ABC starfið er orðið vel þekkt í hverfinu og langir biðlistar eru eftir skólavist. Foreldrar koma jafnvel langar leiðir með börn sín í skólann. Skólinn er rekinn í leiguhúsnæði og er leigan mjög dýr. Það er einnig of lítið pláss og enginn möguleiki á stækkun. Það er því mjög brýnt að ABC komi sér upp sínu eigin húsnæði fyrir skóla í Dakar. Þrjú börn frá Guinea Bissau búa í skólanum þar sem þau hafa ekki í önnur hús að vernda. Tuttugu og tvö börn til viðbótar fá stuðning til náms í öðrum skólum í hverfinu.
Götubarnaathvarfið tekur á móti 35-50 börnum daglega. Þetta eru drengir sem koma í húsið til að fá hvíld frá hættum og erfiðu lífi götunnar. Í athvarfinu fá þeir morgunmat og hádegismat, fara í sturtu, þvo fötin sín, horfa á sjónvarp, leggja sig í smástund, spila fótbolta og körfubolta. Mjög brýnt er að að opna sérstakt hús fyrir athvarfið því erfitt er að hafa það í sama húsi og litlu börnin. Við höfum fundið hús fyrir starfsemina og frábæra sjálfboðaliða en fjármagn vantar til að borga leiguna.
Í knattspyrnuskólann koma reglulega 45 drengir frá 10-16 ára. Við gefum þessum drengum tækifæri til að stunda heilbrigða íþrótt í stað þess að lenda í vanda vegna drykkju eða eiturlyfja. Æfingar eru einu sinni í viku og á hverjum laugardegi eru leikir. Við tökum þátt í nokkrum knattspyrnumótum á ári. Við höfum fengið sjálboðaliða sem er íþróttakennari frá Brasilíu til að þjálfa strákana. Skortur er þó á betri æfingaaðstöðu.
Stór hluti götudrengja í Dakar koma frá nágrannaríkinu Guinea Bissau. Þeir hafa verið plataðir að heiman af glæpaklíkum sem lofa foreldrum þeirra að þeir muni fá góðan aðbúnað og menntun í Senegal. Í staðinn býður þeirra ömurlegt líf á götunni þar sem þeir eru neyddir til að betla fyrir glæpaklíkuna. Þeir eru skilríkjalausir og hafa enga möguleika á að komast aftur heim. ABC reynir að hjálpa þessum drengjum við að snúa aftur til Guinea Bissau og hefur hjálpað 40 þeirra að komast aftur heim. Nauðsynlegt er að byggja skóla og heimili fyrir þá í Guinea Bissau því oft vilja foreldrarnir hreinlega ekki taka við drengjunum aftur því fyrir þá er það bara enn einn munnur að fæða.
| Nýja ABC húsið í Senegal | Forskólabörnin í hádegismat |
![]() |
![]() |
| börnin í fínu svuntunum sínum | Logo ABC barnahjálpar í Senegal |
![]() |
|
| Edda Lína sjálfboðaliði í jólakortagerð | Marli í hópi barna |
| Fótboltalið ABC í Senegal | Í skólanum er skemmtilegt að vera |
| Forskólabörnin í tíma | Eldri börnin í tíma |
![]() |
![]() |
| Götudrengirnir eru alltaf svangir | Jammí |
![]() |
![]() |
| Það er gott að komast í skjól frá götulífinu | |
![]() |
|
| Áhugasamir götudrengir fá að læra stafina | |
![]() |
![]() |
| Gert að sárum götubarns | |
![]() | |
| Allir eru stilltir og prúðir | Að koma frá því að betla |
![]() |
![]() |
| Nöturlegur næturstaður | Húsakynni götubarnanna í Dakar |
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is