Kitetika og þorpin í kring eru u.þ.b. 16 km frá Kampala, höfuðborg Úganda. Flestir íbúanna eru smábændur sem berjast í bökkum við að láta enda ná saman. Flest heimilanna sem börnin okkar búa í eru byggð úr leirsteinum og eru án vatns og rafmagns. Mikil útbreiðsla eyðnis í Úganda hefur gert milljónir barna munaðarlaus. Þau búa flest hjá forráðamanni sem oft er amma þeirra sem þarf að hugsa um mörg barnabörn. Hin mikla fátækt hefur einnig valdið því að margar fjölskyldur hafa sundrast sem veldur örbirgð og bjargarleysi barnanna. Þessar aðstæður hafa gert það að verkum að nauðsynlegt var að finna úrræði til að hjálpa þessum fjölskyldum að veita börnunum menntun, því menntunin gefur þeim von um betra líf.
ABC forskólinn í Kitetika og Kasangati
ABC forskólinn í Kitetika er skóli fyrir börn frá þriggja ára aldri. Forskólinn var settur á laggirnar árið 1992 og hefur börnunum fjölgað mjög ört.
ABC forskólinn í Kasangati var stofnaður 2004. Það var orðið nauðsynlegt að opna skóla í Kasangati sem er um 20 km frá Kampala þar sem mörg 3ja ára börnin þurftu að ganga langan veg til Kitetika í skólann.
Báðir þessir skólar eru gjaldfrjálsir fyrir börnin sem fá skólabúning, skólamáltíð sem inniheldur m.a. mjólk og egg, ritföng og skólabækur og nauðsynleg skólagögn ásamt heilsugæslu.
![]() | |
| Nýja skólahúsið í Kitetika | Glöð börn í skólanum |
![]() |
![]() |
| Yfirlitsmynd yfir byggingarnar í Kitetika | Unglingaskólinn |
![]() | |
| Glöð börn í nýja skólanum sínum | Saumaskólinn |
ABC barnaskólinn í Kitetika
Barnaskólinn í Kitetika var stofnaður 1994. Í upphafi var byrjað með 19 börn í einu húsi á 8 ekra landi. Skólinn stækkaði mjög ört vegna hins mikla fjölda HIV/ eyðni munaðarleysingja og hinnar miklu fátæktar í héraðinu. Börnin voru aðallega börn eyðnissmitaðra ekkna.
Í dag eru í skólanum alls 1.100 börn.
Skólinn er skráður hjá menntamálaráðuneyti Úganda og er talinn mjög góður skóli. Ekkert barn hefur fallið á samræmdum prófum sem tekin eru í lok barnaskólans eftir 7. bekk og hefur skólinn alltaf verið mjög ofarlega á landsvísu. Þetta er gríðarleg viðurkenning fyrir kennarana því nánast öll börnin koma úr lægstu stéttum þjóðfélagsins og búa við mjög slæmar aðstæður. Mörg þessara barna búa hjá öldruðum öfum og ömmum og ef það væri ekki fyrir skólann okkar væru mörg þessara barna ekki á lífi í dag. Þau fá góða læknisþjónustu, skólamáltíð og allt sem þau þarfnast til skólans. Þau fá einnig skólabúning og íþróttabúning.
Á þessu ári eru nemendur 6. og 7. bekkjar, sem eru studdir af stuðnisaðilum ABC á Íslandi, svo blessaðir að fá að fara í heimavist. Þetta þýðir að þeir fá að búa í skólanum allt skólaárið, fá allar máltíðir, læknisþjónustu og allt sem þeir þarfnast. Þetta hjálpar þeim að leggja meiri áherslu á námið en þeir áttu kost á heima vegna skorts á lýsingu, mat og tíma (mörg fengu aðeins eina máltíð á dag og þurftu að ganga langa leið í skólann auk þess að þurfa að vinna heima). Heimavistin veitir einnig ungum stúlkum vernd gegn kynferðislegri misnotkun sem er útbreidd vegna þeirrar hjátrúar eldri manna að mök við óflekkaðar stúlkur veiti lækningu gegn eyðni.
Unglingaskóli Kitetika
Unglingaskólinn í Kitetika var stofnaður árið 2002 og byggður fyrir börnin sem luku barnaskólaprófi. Nemendur byrja á O stigi (Ordinary level) sem tekur fjögur ár og halda svo áfram á A stigi (Advanced level) sem tekur tvö ár. Í unglingaskólanum eru alls 720 nemendur.
Á þessu ári hafa nemendur í unglingaskólanum, líka verið teknir inn á heimavistina með aðstoð stuðningsaðila ABC. Það gerir þeim kleyft að stunda námið af meira kappi en þeir gátu búandi heima.
![]() |
![]() |
| Jólaskemmtun í ABC skólanum | Börnin fá góða læknishjálp og umönnun í skólanum |
![]() |
|
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is