Rackoko - Pader hérað


ABC barnahjálp hefur styrkt börn og staðið fyrir byggingu skóla í flóttamannabúðum í Rackoko um nokkurt skeið.  Rackoko er þorp í Pader héraðinu í Norður Úganda. Á þessu svæði hefur geysað stríð síðastliðin 22 ár.  Allir íbúar Norður-Úganda búa í flóttamannabúðum við ömurlegar aðstæður. Matur og vatn er af skornum skammti, hreinlætisaðstaða er frumstæð og hýbýlin eru óviðunandi. Fátækt og sjúkdómar eru mjög útbreitt vandamál meðal barnanna í Norður-Úganda sem hafa þekkt lítið annað en þjáningar um ævina. Áður en flóttamannabúðirnar voru settar á laggirnar voru íbúarnir, sem voru fátækir smábændur, fórnarlömb uppreisnarmanna. Þúsundir voru drepnir, börnin voru numin á brott og konunum nauðgað og misþyrmt.

Fólk í flóttamannabúðunum er algjörlega háð matargjöfum frá Alþjóðamatvælastofnun Sameinuðu þjóðanna. Fæðið er aðallega mais og baunir.

Húsnæði: Leirkofar með stráþaki. Það búa allt að 10 manns saman í einum kofa.

Vatn: Í búðunum eru aðeins 3 borholur fyrir meira en 17.000 manns. Það getur tekið börnin allt að 4-5 klukkustundir að sækja 20 lítra af vatni til daglegra nota.

Heilsa: Vannæring er mjög mikil. Eyðni/Alnæmi virðist vera að aukast og aðrir sjúkdómar eins og kólera, berklar og niðurgangur eru algengir. Kynsjúkdómar eru útbreiddir og ungar stúlkur verða mjög oft fyrir kynferðislegri misnotkun og eru kynsjúkdómar og eyðni því útbreidd meðal unglinga. Þungun meðal unglingsstúlkna er algeng.

Umhverfið/Tekjur: Þetta mikla óöryggi í Norður-Úganda hefur hrakið íbúana frá því að rækta landið. Flestir hinna fullorðnu eru fátækir bændur sem geta ekki lengur ræktað skikann sinn eins og þeir hafa gert áratugum saman. Uppreisnarhermenn hafa rænt mörgum af börnum þeirra og ættingjum. Sumir hafa komið aftur meðan ekkert hefur til annarra spurst. Enn aðrir hafa verið drepnir. Mikil fjöldi kvenna og stúlkna hefur verið nauðgað og misnotað.


UAF/ABC skólarnir í Rackoko

UAF (Uganda Australia Foundation) hóf hjálparstarf á þessu stríðshrjáða svæði árið 1993. Starfmenn og starfið allt hefur alltaf verið í mikilli hættu og það er mikill vitnisburður um vernd Guðs að þeir eru allir enn á lífi.

UAF og ABC reka nú forskóla, barnaskóla, unglingaskóla og verkmenntaskóla í Rackoko. Árangur barnanna í skólunum hefur hvatt aðra skóla á svæðinu til að gera betur en árangur þeirra er sá besti á öllu svæðinu sem fyrst og fremst má þakka frábærum kennurum.

Börnin eru fyrst tekin inn í leikskóla 3ja ára gömul og 6 ára byrja þau svo í 1. bekk í barnaskóla sem er upp í 7. bekk. Þá tekur við unglingaskóli (secondary school) í 6 ár. Í skólanum eru samtals 1.100 börn. Skólinn sér börnunum fyrir læknisþjónustu, skólamáltíð og öllum nauðsynlegum skólagögnum ásamt skólabúningi og íþróttabúningi.

Börnin að fagna gestum frá Íslandi Glöð börn í ABC skólanum



Heimavistin. Um þessar mundir er ABC að byggja heimavistir fyrir stúlkur í Rackoko. Gríðarleg þörf er á heimavistum við ABC skólann og er nú þriðja heimavistin í byggingu. Hver heimavist mun hýsa 200 stúlkur og kostar 2 milljónir með kojum eða 10 þúsund fyrir hverja stúlku. Alls er ráðgert að byggja 4-5 heimavistir fyrir alls 800-1000 stúlkur.. 

 
Fyrsta heimavistin tilbúin                                                               Önnur heimavistin langt komin


Börn fyrir utan skólastofuna sína Þrengsli í svefnskálanum
Grautur eldaður í stórum potti Fræðsla utan á skólastofu
Börnin í ABC skólanum í Rackoko Flóttamannabúðirnar í Rackoko
Börn í flóttamannabúðunum Vatn sótt í brunninn

 

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is