Kæru stuðningsaðilar,
Við hjá ABC Barnahjálp viljum þakka ykkur innilega fyrir ómetanlegan stuðning á árinu 2024. Með hjálp ykkar höfum við getað veitt þúsundum barna í Afríku og Asíu tækifæri til menntunar og bjartari framtíðar. Árangurinn er einstakur, og við erum stolt af því sem við höfum náð saman. Hér eru nokkur af þeim mörgu mikilvægum verkefnum sem við gátum framkvæmt á árinu:
Heimsókn til Búrkína Fasó:
Við heimsóttum skólann okkar í Búrkína Fasó og afhentum fartölvur fyrir ný útskrifaða nemendur á leið í háskólanám, ásamt sokkum frá Krabbameinsfélagi Íslands. Við fylgdumst með nemendum í skák áfanga sem byrjaði fyrir rúmlega einu ári en nemendurnir hafa náð ótrúlegum árangri og unnið til verðlauna í keppnum.
Íþróttaskór og íþróttafatnaður fyrir krakkana í Búrkína Fasó:
Hjartans þakkir til Ólafíu Kristínar sem safnaði saman mörgum kílóum af íþróttaskóm og íþróttafatnaði handa börnunum okkar í Búrkína Fasó! Sendingin gladdi börnin mikið og veitir þeim betra tækifæri til íþróttaiðkunar.
Hrísgrjónasending til Búrkína Fasó:
Adam Ásgeir Óskarsson hóf fuglasölu í gegnum síðuna sína Tré og föndur. Þökk sé honum og stuðningsaðilum tókst að safna fyrir tveimur og hálfu tonni af hrísgrjónum sem voru afhent skólanum okkar. Þessi skammtur dugar sem matur fyrir börnin í tvo mánuði og styður við betri lífsgæði þeirra. Hluti af gróðanum fór einnig í að bæta vinnuaðstöðu fjögurra kvenna sem vinna á skrifstofu skólans í Búrkína Fasó með því að fjárfesta í tveimur loftkælingum sem settar voru upp.
Heimsókn til Kenýa og Úganda:
Laufey, fyrrum framkvæmdastjóri ABC, dóttir hennar Inga, og Kristjana Hlöðversdóttir, stjórnarmaður ABC, heimsóttu skólann okkar í Kenýa. Þær færðu börnunum íslenskar fótbolta landsliðstreyjur sem KSÍ gaf og börnin tóku þeim með fögnuði. Ferðin hélt áfram til Úganda, þar sem Laufey og Kristjana tóku þátt í opnun malaríu deildar og heimavistar, sem fjármagnað var af ABC og Utanríkisráðuneyti Íslands. Þessi áfangi er mikilvægur fyrir betri lífsskilyrði og menntun barna á svæðinu.
Matarúthlutun í Rasta, Pakistan
Í byrjun árs 2024 fór fram mikilvæg matarúthlutun til fjölskyldna barnanna í ABC skólanum okkar í Rasta, Pakistan. Stuðningur ykkar gerði okkur kleift að senda nauðsynlega fjármuni til þessarar úthlutunar. Þetta er enn ein áminningin um að margt smátt getur sannarlega gert eitt stórt.
Heimsókn frá Filippseyjum:
Þrír starfsmenn frá samstarfsaðila okkar, Children’s Mission Philippines (CMP), heimsóttu okkur á Íslandi. Þessi heimsókn var mikilvæg til að styrkja tengsl og samvinnu sem hefur staðið í áratugi.
Gjöf frá Vopnafirði til stúlkna í Búrkína Fasó
Í október barst ABC skólanum í Búrkína Fasó peningagjöf frá hópi kvenna á Vopnafirði. Þessi gjöf var nýtt til að fræða og styrkja 270 stúlkur á aldrinum 11-14 ára, sem mun hafa varanleg áhrif á líf þeirra. Við þökkum aftur kærlega fyrir stuðninginn.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka:
Tíu frábærir einstaklingar hlupu fyrir ABC Barnahjálp í Reykjavíkurmaraþoninu og söfnuðu allt að 410.403 kr fyrir hjálparstarfið.
Vorfagnaður ABC:
Við héldum vel heppnaðan Vorfagnað þar sem stuðningsaðilar, velunnarar og starfsfólk komu saman til að fagna samstarfinu. Viðburðurinn var einstaklega skemmtilegur og kærkominn.
Opnun malaríudeildar og heimavistar í Úganda:
Á árinu voru malaríudeild og heimavist opnaðar á skólalóð í Úganda, verkefni sem var unnið í samstarfi ABC Barnahjálpar og Utanríkisráðuneytis Íslands. Malaríudeildin veitir börnum og fjölskyldum þeirra aðgang að lífsnauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, sem er mikilvæg í baráttunni gegn þessum alvarlega sjúkdómi. Heimavistin býður nemendum öruggt og þægilegt umhverfi til að stunda nám sitt og er frábær fyrir nemendur sem búa langt frá skólanum. Þetta verkefni er stórt framlag til að bæta heilsu, lífsgæði og menntunarskilyrði barna á svæðinu og hefur þegar haft jákvæð áhrif á líf þeirra.
Jólahappdrætti ABC:
Við settum í gang jólahappdrætti þar sem allur ágóði rann til verkefna ABC Barnahjálpar. Þetta tryggði áframhaldandi stuðning við börn sem þurfa á hjálp að halda. Við þökkum VHE sem var bakhjarl verkefnisins kærlega fyrir stuðninginn ásamt öllum þeim fyrirtækjum sem studdu okkur með veglegum vinningum.
Listaverkið „Bernska“ eftir Esther Ýr:
Samstarfið við listakonuna Esther Ýr Óskarsdóttur vakti mikla athygli. Allur ágóði af sölu listaverksins rennur beint til ABC Barnahjálpar.
Þessi verkefni hefðu ekki verið möguleg án ykkar stuðnings. Við erum ykkur hjartanlega þakklát og hlökkum til að halda áfram að vinna að bjartari framtíð fyrir börn í Afríku og Asíu á nýju ári.
Með kærri kveðju,
ABC Barnahjálp
Höfundaréttur 2024 – ABC barnarhjálp
Höfundaréttur 2024 – ABC barnarhjálp