Millogo Juliette byrjaði í ABC skólanum í borginni Bobo Dioulasso í Búrkína Fasó árið 2009, þá átta ára gömul. Hún kemur frá fátæku heimili eins og öll börnin í ABC skólanum. Húsnæði fjölskyldunnar var kofi úr leirsteinum með bárujárnsþaki. Börnin voru fimm og hún eina stelpan.
Juliette gekk ekki sérlega vel í bóklega náminu og hætti eftir fjórða bekk. Það sama ár stofnuðum við klæðskeradeild við skólann. Juliette byrjaði þar og lauk prófi eftir þriggja ára nám við deildina. Eftir það vann hún hjá klæðskera í tvö ár til frekari þjálfunar.
Í október síðastliðnum byrjaði hún sem aðstoðarkennari við klæðskeradeild skólans. Hlutverk hennar er að kenna fyrsta árs nemendum, sauma skólabúninga og vera Ismael, sem kenndi henni, til aðstoðar. Ismael valdi Juliette vegna þess að hún er einstaklega góð og lagin saumakona.
Við erum að sjálfsögðu mjög ánægð að sjá nemendur okkar blómstra í því sem vel liggur fyrir þeim.