fbpx
200x200

Nabukenya Ramulah er 13 ára gamall nemandi í 9.bekk í barnaskóla ABC í Kitetika, Úganda. Leiðir foreldra Ramulah skildu fljótt eftir fæðingu hennar en þau voru of ung til að ala upp barn svo hún býr með 63 ára móðurömmu sinni, ekkju sem hefur alið hana upp frá fæðingu, í ófullgerðu fimm herbergja húsi. Lifibrauð þeirra eru sætar kartöflur sem amma Ramulah ræktar og selur til að eiga fyrir allra helstu nauðsynjum.

Draumur Ramulah er að verða læknir í framtíðinni og bros þeirra beggja sýna gleðina sem von, trú og öryggi Guðs veitir. Það er fyrir tilstuðlan ykkar, kæru stuðningsaðilar ABC, að börn eins og Ramulah hljóta þá menntun sem veitir þeim tækifærin til að fylgja draumum sínum eftir með bjartsýni í hjarta. Með kveðju og þakklæti frá skólastjórnendum ABC skólans í Úganda.

Skildu eftir svar