Í upphafi árs óskum við ykkur gleðilegs nýs árs um leið og við þökkum fyrir það liðna.
Við erum uppfull af þakklæti er við horfum til baka yfir þau 30 ár sem ABC barnahjálp hefur starfað og hversu stórkostlega hluti hægt er að gera fyrir börnin okkar í Afríku og Asíu fyrir ykkar stuðning.
Það er hreinlega ómetanlegt fyrir líf þessara barna. Svo enn og aftur segjum við Takk Takk Takk og hlökkum við til að starfa með ykkur um ókomin ár.