fbpx
200x200

Í mars mánuði opnuðum við nýjan Nytjamarkað á Laugavegi 118 þar sem við seljum meðal annars fatnað, skó, skartgripi, töskur, bækur, spil og ýmsa smávöru.

Þakklæti er okkur efst í huga þegar einstaklingar og fyrirtæki gefa okkur það sem til fellur, til að selja í Nytjarmörkuðum okkar en með því að versla í Nytjamarkaðinum hjálpar þú ABC barnahjálp að reka skóla og heimili fyrir fátæk börn í 7 löndum í Afríku og Asíu.

Við tökum glöð á móti ykkur alla virka daga frá 12-18 og 12-16 á laugardögum, á Nýbýlaveginum og nú einnig á Laugavegi 118.

Hér má sjá brot af úrvalinu í nýju verslun okkar.

Skildu eftir svar