Skip to content
  • FORSÍÐA
  • FRÉTTIR OG SÖGUR
  • UM ABC
  • Á VETTVANGI
  • FAQ
  • FORSÍÐA
  • FRÉTTIR OG SÖGUR
  • UM ABC
  • Á VETTVANGI
  • FAQ
0 kr. 0 Cart
0 kr. 0 Cart
  • FORSÍÐA
  • FRÉTTIR OG SÖGUR
  • UM ABC
  • Á VETTVANGI
  • FAQ
  • FORSÍÐA
  • FRÉTTIR OG SÖGUR
  • UM ABC
  • Á VETTVANGI
  • FAQ
  • FRÉTTIR
  • SÖGUR

Styrkur sem skilar sér

  • Íris Ósk
  • 04.05.2020

Árið 1990 hóf ABC í samstarfi við Barnmissionen í Svíþjóð að styðja börn í skóla á Payatas svæðinu í Manilla, höfuðborg Filippseyja. Í byrjun nutu um 100 börn stuðnings og hefur þeim fjölgað og í dag njóta um 500 börn stuðnings til náms í gegnum ABC barnahjálp.  Allt í allt hafa þúsundir barna notið stuðnings styrktaraðila í gegnum ABC barnahjálp.

Fjölskyldur barnanna sem Barnmissionen og ABC styðja eru mjög fátækar. Þær búa flestar við ruslahaugana í Manilla í hreysum byggðum úr spýtnarusli með bárujárnsþaki og moldargólfi. Fæstir hafa rennandi vatn né rafmagn. Eldunaraðstöðu er yfirleitt deilt með mörgum öðrum fjölskyldum og þvotturinn er þveginn í húsasundum. Kynferðisleg misnotkun er mjög algeng í Manilla. Fæstar þessara fjölskyldna hafa efni á því að senda börnin sín í skóla því allur peningur sem fjölskyldan vinnur sér inn fer í mat.

Margir búa við bágar aðstæður og vinna á ruslahaugunum. ABC hefur veitt fjölmörgum tækifæri til betra lífs.

Börn sem hafa fengið tækifæri til að mennta sig með stuðningi ABC skipta þúsundum í dag. Styrkur sem klárlega hefur skilað sér og veitt börnum tækifæri til betra lífs. Í ár eru þrjátíu ár frá því að fyrstu börnin á Filippseyjum voru styrkt til náms. Fjölmargar sögur af sigrum hafa orðið til á þeim árum.

Við þessi tímamót er ánægjulegt að staldra aðeins við og sjá hvar þessi fyrstu styrkþegar eru staddir í lífinu í dag.

Romel Emmanuel Basan lauk kennaranámi, B.ed frá háskóla á Filippseyjum. Starfar sem sjálfboðaliði við háskóla og er prestur í stórum kristnum söfnuði. Hann er kvæntur Juliet Dela Torre –Basan sem var einnig styrktarbarn abc. Hún lauk mastersgráðu í stjórnun  en er einnig með gráðu sem kennari. Hún starfar við kennslu í Manilla. Þau eiga eitt barn saman.

Brigette Devilleres Garan varð styrktarbarn í fyrsta bekk grunnskóla. Hún starfar í fjármálageiranum í dag enda lauk hún námi í sviði fjármála og bankasýslu. Hún er gift Grover Garan sem var einnig styrktarbarn. Hann tók sér hlé frá námi í framhaldsskóla en lauk síðar verkfræðimenntun. Hann starfar sem verkfræðingur í Ástralíu. Hjónin eiga fjögur börn.

Maria Zarina Gambal starfar sem matreiðslumaður, en lauk einnig námi sem nuddari, hárgreiðslukona og naglasérfræðingur. Hún er gift og á fjögur börn.

Julie Torilla er menntuð sem kennari og starfar við barnakennslu í einkaskóla. Hún er gift og á tvö börn.

May Anne Teves var styrktarbarn strax í leikskóla. Hún hefur lokið háskólanámi í félagsfræði og starfar sem ráðgjafi við í menntaskóla.

Renz Regencia varð styrktarbarn í fyrsta bekk. Hann er menntaður í tölvufræði og og bókfærslu en starfar við bókhald í dag. Hann er kvæntur og á eitt barn. 

Jen Andrada  býr í Kanada og starfar þar á söluskrifstofu. Hún lauk einnig námi í viðskiptafræði en er einnig menntuð sem sjúkraliði. Hún er einhleyp og á eina dóttur.

Jay Anne Eugenio starfar fyrir hjálparsamtök í heimalandinu, er gift verkfræðingi og eiga þau tvö börn. Hún er með grunnmenntun í uppeldisfræði og lauk einnig námi frá biblíuskóla.

Prev
Next
  • Setja í körfu
    Product Thumb
    100 kg af mais fyrir fjölskyldur nemenda okkar í Búrkína Fasó

    6.000 kr.

  • Setja í körfu
    Product Thumb
    Skólabúningur

    6.000 kr.

  • Setja í körfu
    Product Thumb
    Geit

    6.000 kr.

  • Setja í körfu
    Product Thumb
    Moskítónet

    1.200 kr.

  • Setja í körfu
    Product Thumb
    Heilsugæsla í Pakistan

    10.000 kr.

  • Setja í körfu
    Product Thumb
    Hænuungar

    3.000 kr.

  • Setja í körfu
    Product Thumb
    Álfabikar fyrir stúlkur

    1.500 kr.

Þú getur styrkt barn með mánaðarlegum greiðslum. 

4.500 kr. eða 6.500 kr.

Skrifstofa

  • Nýbýlavegur 4, 200 Kópavogur
  • 414-0990
  • abc@abc.is
  • Kennitala: 690688-1589
  • Reikningsnúmer: 0537-26-6906

Nytjamarkaðir

  • Nýbýlavegur 4, 200 Kópavogur
  • 520-5500
  • nytjo@abc.is
  • Laugavegur 118, 105 Reykjavík
  • 520-5505
  • nytjo@abc.is

Upplýsingar

  • Siðareglur
  • Ársreikningar og skýrslur
  • Skipulagsskrá
Facebook Instagram

Höfundaréttur 2024 – ABC barnarhjálp

Skrifstofa

  • Nýbýlavegur 4, 200 Kópavogur
  • 414-0990
  • abc@abc.is
  • Kennitala: 690688-1589
  • Reikningsnúmer: 0537-26-6906

Nytjamarkaðir

  • Nýbýlavegur 4, 200 Kópavogur
  • 520-5500
  • nytjo@abc.is
  • Laugavegur 118, 105 Reykjavík
  • 520-5505
  • nytjo@abc.is

Upplýsingar

  • Siðareglur
  • Ársreikningar og skýrslur
  • Skipulagsskrá
Facebook Instagram

Höfundaréttur 2024 – ABC barnarhjálp