Við þökkum kærlega fyrir okkur - ABC barnahjálp

Við þökkum kærlega fyrir okkur

alt

Árleg söfnun ABC barnahjálpar, Börn hjálpa börnum, stóð yfir dagana 16. mars til 9. apríl og gengu grunnskólabörn í heimili og fyrirtæki með söfnunarbauka. Söfnunin fagnaði merkum áfanga en hún var haldin í tuttugusta sinn. Okkur þykir ánægjulegt að tilkynna að alls söfnuðust 7.987.020 krónur til styrktar starfinu.

Söfnunarfénu verður ráðstafað til áframhaldandi uppbyggingar á starfsemi ABC í Afríku og Asíu.

Við þökkum þessum mikilvægu sendiherrum starfsins kærlega fyrir okkur. Meðfylgjandi mynd var teiknuð af nemanda í Oddeyrarskóla á Akureyri. Á henni stendur “gjöf sem gerir gæfumun” og það er hverju orði sannara.